Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Þjónustumiðstöð á Nesvöllum

Þjónustumiðstöð á Nesvöllum

Þjónustumiðstöð eldra fólks er staðsett á Nesvöllum, Njarðarvöllum 4. Hér er góður staður til að fá þjónustu, hitta fólk og njóta samveru.

Við erum opin alla virka daga. Opnunartími er kl. 08:00 – 16:00.

Þú getur haft samband í síma 420 3400 eða sent tölvupóst á nesvellir@reykjanesbaer.is.

Hjarta Nesvalla

Þjónustumiðstöðin er hjarta Nesvalla. Hér er líflegt mannlíf og fjölbreytt starfsemi fyrir eldra fólk.

Á Nesvallasvæðinu eru einnig:

  • Hjúkrunarheimili
  • Dagdvöl
  • Hárgreiðslustofa
  • Snyrti-og fótaaðgerðastofa
  • Skrifstofa öldrunar-og stuðningsþjónustu
  • Skrifstofa félag eldri borgara

Aðstaðan er fyrsta flokks og aðgengileg öllum.

Opið öllum eldri íbúum Reykjanesbæjar

Allt eldra fólk í Reykjanesbæ er velkomið á Nesvelli. Hér er boðið upp á þjónustu, samveru og fjölbreytta afþreyingu.

Á Facebook-síðunni Nesvellir finnur þú upplýsingar um:

  • Matseðla
  • Viðburði
  • Annað sem er í gangi á Nesvöllum

Hádegisverður í þjónustumiðstöð

Í þjónustumiðstöðinni á Nesvöllum er boðið upp á heitan og næringarríkan hádegisverð alla virka daga. Öll eru velkomin að mæta og njóta góðrar máltíðar í notalegu umhverfi. Hádegisverður er í boði alla virka daga kl. 11:30 – 13:00.

Matseðill vikunnar er birtur í upphafi hverrar viku á Facebook-síðu Nesvalla.

Um helgar er boðið upp á heimsendingu á mat.

Máltíðinn kostar : 1.950 kr.