Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

725. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 6. október 2026 kl. 17.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðal-bæjarfulltrúi, Díana Hilmarsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Guðbergur Ingólfur Reynisson aðal-bæjarfulltrúi, Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir vara-bæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Gunnlaugur Kárason aðal-bæjarfulltrúi, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Hámundur Örn Helgason vara-bæjarfulltrúi, Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar, Róbert Jóhann Guðmundsson aðal-bæjarfulltrúi, Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri

Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Kristján Pétur Kristjánsson boðaði forföll, Sunna Gunnarsdóttir sat fyrir hann.

Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll, Hámundur Örn Helgason sat fyrir hann.

Dagskrá fundar

1. Fundargerðir bæjarráðs 17., 22. og 23. september og 1. október 2026 (2026010008)

Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir og lagði fram sameiginlega bókun bæjarstjórnarfulltrúa Reykjanesbæjar:

Mál 6 frá fundargerð bæjarráðs 1. október 2026 - Þjóðarsátt um verðstöðugleika – Starfsgreinasamband Íslands (2026090439)

"Bæjarstjórn Reykjanesbæjar telur mikilvægt að sveitarfélög, ríki og aðilar vinnumarkaðarins taki höndum saman um að draga úr verðbólguþrýstingi, stuðla að lækkun vaxta og verja kaupmátt heimilanna. Slíkt sameiginlegt átak krefst þess að allir aðilar leggi sitt af mörkum og sýni ábyrgð og hófsemi.

Bæjarstjórn tekur undir ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga um að halda hækkunum almennra gjaldskráa sveitarfélaga innan 2,5% á árinu 2027. Reykjanesbær mun því stefna að því að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa bæjarsjóðs við 2,5%. Jafnframt hvetur bæjarstjórn ríkið, stofnanir þess og atvinnulífið til að leggja sitt af mörkum með sambærilegu aðhaldi að gjaldskrám, álögum og verðhækkunum sem hafa bein áhrif á heimilin.“

Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Margrét Þórarinsdóttir, Sunna Gunnarsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki, Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hámundur Örn Helgason Samfylkingu.

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.

Til máls tók Vilhjálmur Árnason (D) og lagði fram eftirfarandi bókanir meirihluta bæjarstjórnar:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 17. september 2026  - Árshlutauppgjör - 6 mánaða uppgjör (2026060082)

„Árshlutauppgjör Reykjanesbæjar sýnir að rekstrarniðurstaða fyrstu sex mánaða ársins var neikvæð um tæplega 103 milljónir króna, þrátt fyrir að fjárhagsáætlun hafi gert ráð fyrir rúmlega 93 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Raunveruleg staða undirliggjandi rekstrar bæjarsjóðs er þó enn alvarlegri. Á tímabilinu féllu til 366 milljónir króna í óáætlaðar einskiptistekjur vegna HS Veitna. Án þeirra hefði rekstur bæjarsjóðs verið neikvæður um 469 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þessar einskiptistekjur falla ekki til að nýju á síðari hluta ársins. Sú staðreynd að reksturinn skilar engu að síður 103 milljóna króna tapi á fyrri árshelmingi, þrátt fyrir 366 milljóna króna óáætlaðar tekjur, gefur sterka vísbendingu um verulegt misræmi milli fjárhagsáætlunar og raunverulegs rekstrar. Það vekur spurningar um forsendur fjárhagsáætlunar ársins og bendir til þess að, verði ekkert aðhafst, geti verulegur rekstrarhalli myndast á síðari hluta ársins.

Þróun rekstrarniðurstöðu A-hluta undanfarin ár segir sína sögu. Rekstrarniðurstaðan var jákvæð um 1.453 milljónir króna árið 2023, 1.113 milljónir króna árið 2024, 440 milljónir króna árið 2025 og fjárhagsáætlun fyrir hálfsársuupgjörið gerði ráð fyrir 93 milljóna króna jákvæða niðurstöðu árið 2026. Nú stefnir í rekstrartap á þessu ári verði ekki gripið til aðgerða. Þessi þróun verður ekki skýrð sem einstakt frávik eða tímabundinn vandi. Tölurnar sýna þvert á móti að rekstrarafkoma sveitarfélagsins hefur versnað hratt ár frá ári vegna lausataka í fjármálastjórninni. Núverandi meirihluti stendur því frammi fyrir því verkefni að snúa þessari þróun við og koma rekstri sveitarfélagsins aftur á traustan og sjálfbæran grundvöll.

Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir er tæplega 27% undir áætlun ársins, eða sem nemur rúmlega 440 milljónum króna. Þar munar mest um frávik vegna vöru- og þjónustukaupa. Fjármagnskostnaður var jafnframt um 20% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þar sem hærra vaxtastig og verðbólga vega þungt. 

Það er áhyggjuefni að rekstrarniðurstaðan sé neikvæð og undir áætlun. Niðurstaðan undirstrikar mikilvægi þeirrar vinnu sem núverandi meirihluti hefur þegar hrundið af stað til að styrkja rekstur og fjármálastjórn sveitarfélagsins. Þar má meðal annars nefna stofnun umbóta- og hagræðingarteymis og breytta aðferðafræði við fjárhagsáætlunargerð, þar sem aukin áhersla er lögð á núllgrunnsnálgun í stað hefðbundinnar úthlutunar fjárhagsramma til einstakra sviða. 

Nú stendur yfir umfangsmikil vinna við gerð fjárhagsáætlunar þar sem hvert svið þarf að greina helstu áskoranir í rekstri og kortleggja hvar tækifæri liggja til úrbóta, einföldunar og hagræðingar. Jafnframt er lögð áhersla á breytingar sem geta stuðlað að betri nýtingu fjármuna, aukinni skilvirkni og áframhaldandi öflugri þjónustu við íbúa.

Markmiðið með þessari vinnu er að bæta áætlunargerð sveitarfélagsins, auka fyrirsjáanleika í rekstri og skapa þannig traustari grundvöll fyrir upplýsta og markvissa ákvarðanatöku.

Núverandi meirihluti hefur þegar stigið skref til að bregðast við þeirri stöðu og vill leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi. Meðal þeirra aðgerða er lækkun byggingarréttargjalda niður í 0 krónur. Með þeirri ákvörðun vill Reykjanesbær ryðja brautina og hvetja önnur sveitarfélög til að skoða sambærilegar aðgerðir. Jafnframt tekur bæjarstjórn undir ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga um að halda hækkunum almennra gjaldskráa sveitarfélaga innan 2,5% á árinu 2027. Reykjanesbær mun því stefna að því að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa bæjarsjóðs við 2,5%.

Það er mikilvægt að hafa í huga að hér er um langhlaup að ræða. Verkefnið krefst þess að við vinnum saman að því að styrkja rekstur sveitarfélagsins til framtíðar. Við sem stöndum að núverandi meirihluta skorumst ekki undan þeirri ábyrgð sem felst í því að taka nauðsynlegar ákvarðanir, jafnvel þegar þær eru krefjandi. Við tökum við ósjálfbærum rekstri bæjarsjóðs en markmiðið er skýrt: að tryggja traustan og sjálfbæran rekstur Reykjanesbæjar og skapa öflugt samfélag sem þjónar íbúum og fyrirtækjum til framtíðar.“

Mál 2 frá fundargerð bæjarráðs 1. október 2026 - Eignasjóður Reykjanesbæjar – staða fjárfestingaráætlunar (2025080340)

„Bæjarráði barst minnisblað og beiðni í viðauka frá Eignasjóði þann 28. September 2026 þar sem greint var frá frávikum framkvæmda umfram fjárheimildir og óskað eftir viðauka. Bæjarráð fjallaði um málið á 1579. fundi bæjarráðs þann 1. október 2026. Frávik frá fjárheimildum ársins 2026 tengjast meðal annars framkvæmdum við leikskólana Drekadal og Völl og framkvæmdum við Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Á móti eru ónýttar fjárheimildir vegna annarra verkefna og nemur nettófrávik fjárfestingaráætlunar Eignasjóðs samtals 271,8 m.kr. miðað við stöðu 28. september 2026. Meirihlutinn telur óheppilegt að kostnaður hafi fallið til umfram fjárheimildir ársins áður en viðauki lá fyrir. Það er ekki það verklag sem meirihlutinn vill viðhafa og mikilvægt er að draga lærdóm af þeirri stöðu. Um leið verður umræðan að byggjast á heildarmyndinni og þeirri stöðu sem núverandi meirihluti tók við. Umfangsmiklar framkvæmdir við Myllubakkaskóla og Holtaskóla voru ákveðnar og hafnar á síðasta kjörtímabili án þess að fjármögnun þeirra væri tryggð til verkloka. Núverandi meirihluti tók því við framkvæmdum sem voru langt komnar en enn á eftir að verja milljörðum króna til að ljúka. Þá tengist hluti frávika ársins framkvæmdum sem ráðist var í á tíð fyrri meirihluta. Þar má meðal annars nefna framkvæmdir við leikskólann Drekadal, sem nú er lokið, auk þess sem yfirferð hefur leitt í ljós að um 74 m.kr. kostnaður vegna framkvæmda ársins 2025 var greiddur í janúar 2026 og féll því á fjárfestingaráætlun þessa árs. Staðan við Myllubakkaskóla sýnir jafnframt þann vanda sem núverandi meirihluti tók við. Upphafleg tillaga eignaumsýslu að fjárfestingaráætlun ársins 2026 gerði ráð fyrir 1.250 m.kr. til verkefnisins sem forgangsverkefnis, en endanleg fjárheimild var 979 m.kr. Fjárheimildin var þannig lækkuð um 271 m.kr. án þess að verkþættir verkefnisins væru skornir niður að sama skapi.

Í þeirri umræðu sem nú fer fram er jafnframt mikilvægt að horfa til þeirra ákvarðana sem teknar voru um framkvæmdirnar, fjármögnun þeirra og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins áður en núverandi meirihluti tók við.

Í þeirri umræðu sem nú fer fram er jafnframt mikilvægt að horfa til þeirra ákvarðana sem teknar voru um framkvæmdirnar, fjármögnun þeirra og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins áður en núverandi meirihluti tók við.

Staðreyndin er sú að núverandi meirihluti tók við umfangsmiklum og yfirstandandi framkvæmdum án tryggðrar fjármögnunar til verkloka og það verkefni blasir nú við að greiða úr þeirri stöðu með ábyrgum hætti. Hvað framkvæmdir við Myllubakkaskóla og Holtaskóla varðar er jafnframt mikilvægt að gera skýran greinarmun á fráviki frá fjárheimild ársins og kostnaðarframúrkeyrslu framkvæmdanna sjálfra. Ekki er um að ræða nýjar framkvæmdir utan heildaráætlunar verkefnanna heldur hefur hluti fyrirhugaðs framkvæmdakostnaðar fallið til fyrr en fjárheimildir ársins gerðu ráð fyrir. Kostnaðurinn dregst því frá þeim framkvæmdum sem eftir standa. Heildaráætlaður kostnaður verkefnanna tveggja er rúmir 10 milljarðar króna og miðað við stöðu í lok september standa enn eftir um 2,7 milljarðar króna af áætluðum framkvæmdum. Stöðvun framkvæmdanna hefði því ekki leyst þann undirliggjandi vanda að fjármagna þarf eftirstöðvar þeirra heldur hefði hún aukið kostnað og tafið verklok. Jafnframt liggur fyrir að stöðvun og endurræsing framkvæmdanna hefði haft í för með sér verulegan viðbótarkostnað. Reynslan af fyrri stöðvunum þessara verkefna sýnir einnig að slíkar ákvarðanir geta haft veruleg áhrif á kostnað, tímaáætlanir og framvindu. Það hefði því ekki verið ábyrg fjármálastjórn að líta fram hjá þeim kostnaði við mat á því hvernig bregðast ætti við stöðunni. Bæjarráð hefur nú samþykkt 170 m.kr. viðauka vegna framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla svo hægt sé að halda nauðsynlegum verkþáttum áfram með eðlilegum og hagkvæmum hætti. Meirihlutinn styður jafnframt þá áfangaskiptingu sem umhverfis- og framkvæmdasvið leggur til þar sem brýnustu verkum er forgangsraðað og öðrum verkþáttum frestað eftir því sem kostur er. Þessi staða undirstrikar þá afstöðu meirihlutans að verkefni af þessari stærðargráðu verði ekki rekin með því fyrirkomulagi að fjárheimildir séu aðeins tryggðar fyrir hluta framkvæmdatímans. Fjármögnun stórra framkvæmda þarf eftir fremsta megni að vera fyrirsjáanleg til verkloka og breytingar á fjárheimildum þurfa að haldast í hendur við breytingar á umfangi og framvindu verkefna. Meirihlutinn hefur þegar hafið breytingar á skipulagi og utanumhald framkvæmda. Eignasjóður er styrktur og aukin verkefnastjórn, kostnaðareftirlit og eftirfylgni færð nær sveitarfélaginu. Markmiðið er að bæta yfirsýn, stytta boðleiðir og tryggja skýrara eftirlit með kostnaði, fjárheimildum og framvindu framkvæmda. Jafnframt verður komið á reglulegri upplýsingagjöf til umhverfis- og framkvæmdaráðs þar sem sviðsstjóri leggur mánaðarlega fram yfirlit um stöðu framkvæmda sveitarfélagsins og kostnaður og framvinda eru borin saman við samþykktar kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir. Meirihlutinn ætlar ekki að gera lítið úr því fráviki sem komið hefur upp og mun axla ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar eru á hans vakt. Að sama skapi verður ekki horft fram hjá þeirri stöðu sem tekið var við eða þeim ákvörðunum sem leiddu til hennar. Verkefnið nú er að greiða úr þeirri stöðu, styrkja stjórnun og eftirlit með framkvæmdum og ljúka þessum mikilvægu verkefnum fyrir skólasamfélagið með eins ábyrgum og hagkvæmum hætti og kostur er.“

Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Margrét Þórarinsdóttir, Sunna Gunnarsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun minnihluta bæjarstjórnar:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 17. september 2026  - Árshlutauppgjör - 6 mánaða uppgjör (2026060082)

„Árshlutareikningur fyrir sex mánaða uppgjör Reykjanesbæjar sýnir sterka stöðu bæjarsjóðs.

Rekstrarniðurstaða Reykjanesbæjar er neikvæð um 103 milljónir fyrstu sex mánuði ársins en upphaflega var gert ráð fyrir um 93 milljónum í hagnað.

Fyrir þessu eru eðlilegar ástæður líkt og hefur komið fram í fréttaflutningi annarra sveitarfélaga sem hafa gefið út sex mánaða uppgjör sitt.

Þar munar helst um:

Fjármagnsgjöld eru 185 milljónum umfram áætlanir (vaxtagjöld).

Á tímabilinu var gert ráð fyrir 3,5% verðbólgu sem reyndist svo vera 5,6%.

Hækkun lífeyrisskuldbindinga var 38,5 milljónir umfram áætlun, en helsta ástæðan sem veldur er hækkun verðbólgu.

Vöru- og þjónustukaup eru 325 milljónir umfram áætlun, ástæðan fyrir því eru framhlaðnar framkvæmdir þar sem verið er að framkvæma meira miðað við áætlaða dreifingu ársins og á þar við atriði líkt og malbikun á götum, viðhald vegna sumarlokun stofnanna o.s.frv. Þessi framhlaðni kostnaður jafnast út í lok árs.

Tveir viðhaldsþættir eru óvæntir, en viðgerðir hófust í Reykjaneshöll vegna leka og farið var í auknar framkvæmdir við HS Orkuvöllinn í Keflavík til að bregðast við athugasemdum KSÍ skýrslunnar, samtals um 40 milljónir.

Okkur reiknast einnig til að enn standi eftir uppgjör við ríkið vegna byggingu á nýja hjúkrunarheimilinu við Nesvelli eða alls um 80 milljónir.

Aðalatriðin

Framlegðin (tekjur eftir að breytilegur kostnaður er tekinn frá) er 8,4% en var 7,7% á sama tíma í fyrra.

Handbært fé stendur í 1,78 milljörðum.

Hreint veltufé frá rekstri (það fjármagn sem stendur eftir frá rekstrinum til að nýta í fjárfestingar eða niðurgreiðslu á skuldum) er að aukast úr 883 milljónum í 1,18 milljarð sem er 300 milljóna króna hækkun, alls 34% hækkun milli ára.

Handbært fé frá rekstri hækkar úr 407 milljónum í 995 milljónir sem er 588 milljóna hækkun, alls 144% hækkun milli ára.

Skuldir og skuldbindingar lækka um 200 milljónir, frá sama tíma í fyrra.

Fyrrum meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar eru að skila góðu búi. Þessi sex mánaða reikningur sveitarfélagsins sýnir það. Eftir miklar framkvæmdir og fordæmalausan vöxt sveitarfélagsins höfum við engu að síður náð að halda rekstrinum heilbrigðum og skilum af okkur þessu síðasta uppgjöri okkar.

Á sama tíma og efnahagsumhverfið einkennist af háum stýrivöxtum og verðbólgu, náðum við þrátt fyrir hækkanir á gjöldum þeim tengdum, að gæta þess líkt og við höfum ávallt gert að tekjur eru hærri en gjöld alls um 1,2 milljarð. Þannig tryggjum við góðan og heilbrigðan rekstur. Auk þess hækkar framlegð milli ára ásamt handbæru fé og hreint veltufé eykst sem er ein heilbrigðasta reiknistærð sveitarfélaga.

Samfylkingin og Framsókn kveðja hér stýringu sveitarfélagsins sátt. Við höfum náð að skila góðum rekstri undanfarin áratug sem sést á heilbrigðum reikningi. Við viljum þakka starfsfólki Reykjanesbæjar eindregið fyrir frábæra vinnu og alúð í rekstri sveitarfélagsins okkar.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hámundur Örn Helgason Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Gunnlaugur Kárason.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun minnihluta bæjarstjórnar:

Mál 2 frá fundargerð bæjarráðs 1. október 2026 - Eignasjóður Reykjanesbæjar – staða fjárfestingaráætlunar (2025080340)

„Framkvæmdir keyrðar tæplega 300 milljónum fram úr áætlun

Það er sorglegt að sjá þann neikvæða viðsnúning sem orðið hefur í fjárfestingum og stýringu fjármagns í Reykjanesbæ eftir aðeins fjóra mánuði undir stjórn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins.

Í fjárfestingaáætlun ársins 2026 var alls 1.440 milljónum króna úthlutað til framkvæmda við  Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Framkvæmdirnar gengu samkvæmt áætlun og átti að ljúka þeim verkþáttum í lok ágúst.

Í júní kom fram ósk um viðauka til að halda framkvæmdum við skólana áfram frá september til loka desember. Afgreiðslu málsins var frestað en meirihlutinn bókaði eftirfarandi:

„telur meirihlutinn nauðsynlegt að fyrir liggi heildstæð kostnaðaráætlun og uppfærð tímaáætlun fyrir verkefnið. Í þeirri greiningu skal jafnframt gera grein fyrir fjármagnskostnaði og öðrum kostnaðarþáttum sem kunna að hafa áhrif á heildarumfang verkefnisins.

Á þeim tíma var búið að framkvæma 65% af samþykktum verkþáttum ársins í Myllubakkaskóla og 79% í Holtaskóla. Næstu 14 vikurnar kom ekkert annað erindi til bæjarráðs um viðauka vegna framkvæmdanna. Samt héldu framkvæmdirnar áfram. Frá lok júní til byrjunar október var ráðist í verkþætti sem voru ekki í samþykktri fjárfestingaáætlun, án þess að viðauki hefði verið samþykktur.

Þann 1. október var bæjarráði svo tilkynnt um „frávik“ frá fjárfestingaáætlun upp á 272 milljónir króna. Engar skýringar hafa verið veittar og enginn hefur axlað ábyrgð. Meirihlutinn kemur af fjöllum.

Mikilvæg uppbyggingarverkefni

Við höfum stutt og styðjum áfram enduruppbyggingu Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins hefur þó sett uppbyggingunni mörk og okkur ber að haga framkvæmdum í samræmi við það. Á síðasta kjörtímabili samþykkti meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar að hækka lánaheimild sveitarfélagsins um 800 milljónir króna, í alls fjóra milljarða. Markmiðið var að verja meira fjármagni til enduruppbyggingar grunnskólanna og ljúka verkefnunum fyrr. Þessu var Sjálfstæðisflokkurinn algjörlega mótfallinn.

Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að fjárhagsáætlun sveitarfélags er bindandi. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum er almennt óheimilt að víkja frá henni nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka. Meirihlutinn verður að gera grein fyrir því hvernig staðið var að ákvörðunum um áframhald framkvæmdanna.

Eftir aðeins fjóra mánuði við stjórn bæjarins verða Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn að svara fyrir þessa meðferð fjármuna. Það vekur sérstaka athygli að hagræðingarteymi bæjarstjóra flaggaði engum viðbrögðum á umræddum 14 vikum. Annað hvort hefur eftirlit meirihlutans með framkvæmdunum brugðist eða ákvarðanir verið teknar um að halda þeim áfram án nauðsynlegra fjárheimilda. Í báðum tilvikum ber meirihlutanum að upplýsa málið og axla pólitíska ábyrgð á stjórn fjármála sveitarfélagsins.

Það er óásættanlegt að meirihluti sem krafðist betri áætlana í júní komi af fjöllum þegar reikningurinn er lagður fram í október.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hámundur Örn Helgason Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

2. Fundargerðir skipulagsráðs 18. september og 2. október 2026 (2026010016)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 18. september til sérstakrar samþykktar.

Sjötta mál fundargerðarinnar Hafnargata 56 - breyting á deiliskipulagi (2026080507) samþykkt 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 2 október til sérstakrar samþykktar.

Sjötta mál fundargerðarinnar Njarðarvellir 2 - Krossmói 10 (2026080156) samþykkt 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn undir máli 3 Iðjustígur 1 – breyting á deiliskipulagi frá fundargerð skipulagsráðs  frá 18. september:

"1.Hvernig er áætlað að bregðast við mótmælum nágranna sem eru skráðir til heimils í öðru sveitarfélagi?

2.Hvernig verður brugðist við aukinni umferð á þessum litla reit fyrir 85 auka íbúðir?

a.Verður Njarðarbrautin tvöfölduð á þessum stað?

b.Verður Þjóðbraut tvöfölduð?

3.Í ljósi fordæmis er sjálfstæðisflokkurinn sáttur við að byggt sé blokkakjarni ef hann er undir 90 íbúðum? Á þá það sama við um Akkerið eða er það algjörlega önnur ákvörðun?

4.Hvað mun fyrirhugaður bílakjallari rúma marga bíla fyrir íbúa?

Ég óska eftir formlegum svörum við þessum spurningum og það væri einnig gott að fá afstöðu bæjarstjórans á verði íbúða í blokkum með bílakjallara sem hann taldi óseljanlegar í Akkerisverkefninu þar sem verðið yrði of hátt, á það einnig við hér eða er það algjörlega önnur ákvörðun?"

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Samfylkingu.

Til máls tóku Vilhjálmur Árnason og Guðbergur Reynisson

Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.

3. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 17. september 2026 (2026010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Alexander Ragnarsson og Vilhjálmur Árnason.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn undir máli 10 Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2026020457) frá fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 17. september:

"Mál þrjú – Aksturstengingin milli Njarðvíkurhafnar og Reykjanesbrautar

Þarna er bókað að sviðsstjóri umhverfissviðs upplýsir að hönnun hringtorgs við Grænásbrekku væri í vinnslu. Þar sem þessi setning hefur verið bókuð of oft til að ég hreinlega færi að leita þá langar mig að leggja fram formlega fyrirspurn hér:

1.Hvar nákvæmlega stefndur sú vinna við að hanna Grænáshringtorgið?

2.Eru til teikningar sem hægt er að sjá annað en bókuð um vinnslu málsins?

3.Hvenær lýkur þeirri vinnu til að bæjarráð og bæjarstjórn geti fengið kynningu á útliti, stærð og staðsetningu hringtorgsins?"

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Samfylkingu.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

4. Fundargerð íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs 24. september 2026 (2026010010)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Sunna Gunnarsdóttir.

Til máls tók Hámundur Örn Helgason (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Mig langar að nýta tækifærið til að kalla eftir svörum við nokkrum atriðum sem mér finnst enn óljós eftir þær breytingar sem gerðar hafa verið á íþrótta-, tómstunda- og menningarráði.

Þegar ákveðið var að sameina þessa málaflokka í eitt ráð hlaut markmiðið að vera meira en að setja nýtt nafn á nefnd. Tilgangurinn hlýtur að hafa verið að sameina málaflokkana í raun, nýta samlegðaráhrif og tryggja að íþrótta-, tómstunda- og menningarmál fengju öll eðlilegt vægi.

Þess vegna langar mig að leggja fram formlega fyrirspurn:

Af hverju sitja sviðsstjóri menningar og menningarfulltrúi ekki fundi ráðsins?

Af hverju koma þær inn sem gestir á fundina á meðan íþrótta- og tómstundafulltrúi situr allan fundinn, undirbýr og leiðir?

Ef við ætlum raunverulega að sameina þessa málaflokka, hvernig á þá að tryggja að fagleg þekking og sjónarmið menningarmála séu inni í herberginu þegar ráðið fjallar um og tekur ákvarðanir í þeim málaflokki?

Þetta tengist líka öðru sem kom mjög skýrt fram á fundinum.

Á dagskrá voru tólf mál. Þetta eru stórir og mikilvægir málaflokkar og þegar umfangið er orðið þetta mikið vaknar einfaldlega spurning um hvort fyrirkomulagið sé raunhæft. Gefst ráðinu nægur tími til umræðu og vandaðrar afgreiðslu mála?

Á fundinum í ágúst kom meðal annars fram ábending, bæði frá áheyrnarfulltrúa og nefndarfulltrúum, um að hér væru of stórir málaflokkar komnir undir sama ráð og hætta væri á að annar þeirra lenti undir.

Þá var formanni ráðsins falið að ræða þær áhyggjur við bæjarstjóra. Mig langar því að spyrja formlega: Hver er niðurstaða þessa samtals?

Því þetta snýst ekki um það hvort sameining málaflokka geti virkað. Hún getur það vel. En þá þarf stjórnsýslan, faglegi stuðningurinn og tíminn sem ráðinu er ætlaður að endurspegla umfang verkefnisins. Ef umfang fundardagskrár þýða að ekki gefst raunverulegt svigrúm til umræðu, þá þurfum við að vera tilbúin að endurskoða framkvæmdina.

Mig langar einnig að nefna Grindavíkurleiðina.

Ég heyri ítrekað frá fjölskyldum sem bíða eftir svörum. Hugmyndin sem kynnt var var skýr: eitt æfingagjald og að börn geti valið þá íþrótt eða tómstund sem þau vilja. Þessi hugmynd vakti eðlilega væntingar hjá fjölskyldum í Reykjanesbæ.

Þess vegna vil ég fá skýr svör frá meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks:

Hvar stendur þetta verkefni í dag? Er enn stefnt að því að innleiða þessa leið? Hvenær eiga fjölskyldur í Reykjanesbæ að geta nýtt sér hana? Hvernig verður hún útfærð og hvernig verður hún fjármögnuð?

Fjölskyldurnar sem tóku þessi fyrirheit alvarlega eiga skilið skýr svör.

Ég óska eftir því að meirihlutinn svari þessum spurningum mínum formlega: um stöðu menningarmála innan hins sameinaða ráðs, hvort umfang ráðsins sé orðið of mikið fyrir einn fund og, ekki síst, hver raunveruleg áætlun meirihlutans sé varðandi Grindavíkurleiðina."

Hámundur Örn Helgason, Samfylkingu.

Til máls tóku Vilhjálmur Árnason og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

5. Fundargerð leikskólaráðs 25. september 2026 (2026060312)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

6. Fjárhagsáætlun 2027-2030 – fyrirspurn (2026070036)

Forseti gaf orðið laust.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir og lagið fram eftirfarandi fyrirspurn:

"1.Hver er raunstaða fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir árið 2027?

Er í vinnslu án okkar en kemur mögulega í næstu viku. Með sviðsstjórum.

2.Eru komin drög að tekjuáætlun sem á eftir að afhenda fulltrúum minnihlutans?

3.Eru komin drög að gjaldskrá?

a.Ef svo er, náum við markmiðum sem við staðfestum í ályktun allra sveitarfélaga á Íslandi á nýafstöðnu landsþingi um að allar okkar gjaldskrár rúmast að hámarki innan 2,5% hækkun?

4.Hvar er núllgrunnsáætlun Sparnaðarteymisins?

5.Hvaða fjárfestingum er búið að forgangsraða yfir á næsta ár?"

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Samfylkingu.

Til máls tóku Gunnlaugur Kárason, Vilhjálmur Árnason ,Guðný Birna Guðmundsdóttir, Alexander Ragnarsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir

7. Reykjanesbraut, Hafnavegur-Garðskagavegur - umhverfismatsskýrsla (2024110164)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðbergur Reynisson.

8. Breytingar á skipan fulltrúa í kjörnum ráðum (2026050306)

Menntaráð:

Ásta María Guðmundsdóttir (B) fer út sem varamaður, í hennar stað kemur Bjarney Rut Jensdóttir (B).

Atvinnu- og hafnarráð:

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir (B) fer út sem varamaður, í hennar stað kemur Ásta María Guðmundsdóttir (B).

Samþykkt 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:40.