Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

727. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 20. október 2026 kl. 17.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Matsalur

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðal-bæjarfulltrúi, Ásdís Ólafsdóttir vara-bæjarfulltrúi, Díana Hilmarsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Gunnlaugur Kárason aðal-bæjarfulltrúi, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Hjörtur Magnús Guðbjartsson aðal-bæjarfulltrúi, Kristján Pétur Kristjánsson aðal-bæjarfulltrúi, Margrét Þórarinsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Róbert Jóhann Guðmundsson aðal-bæjarfulltrúi, Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri

Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðbergur Reynisson boðaði forföll, Ásdís Ólafsdóttir sat fyrir hann.

Dagskrá fundar

1. Fundargerðir bæjarráðs 7. og 15. október 2026 (2026010008)

Til máls tók Gunnlaugur Kárason og lagði fram sameiginlega bókun bæjarstjórnarfulltrúa Reykjanesbæjar:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 15. október 2026 - Sjúkraflutningar á Suðurnesjum (2026100175)

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af vanfjármögnun ríkisins á sjúkraflutningum á Suðurnesjum.

Sjúkraflutningar eru á ábyrgð ríkisins og eiga greiðslur Sjúkratrygginga Íslands að standa undir kostnaði við þjónustuna. Samkvæmt kostnaðargreiningu Deloitte var halli á rekstri sjúkraflutninga 14 m.kr. árið 2025. Áætlað er að hallinn verði um 48 m.kr. árið 2026, þar sem greiðslur lækka á milli ára þrátt fyrir hækkun launa og rekstrarkostnaðar.

Kröfur til þjónustunnar hafa jafnframt aukist án þess að fjármögnun hafi fylgt þeirri þróun. Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað hratt og áframhaldandi fjölgun mun kalla á aukna þjónustu og viðbragðsgetu.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á heilbrigðisráðherra og Sjúkratryggingar Íslands að tryggja að greiðslur standi að fullu undir raunkostnaði við sjúkraflutninga á Suðurnesjum.“

Alexander Ragnarsson, Ásdís Ólafsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki, Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur M. Guðbjartsson Samfylkingu.

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fundargerð 1583. fundar bæjarráðs 7. október 2026

Fundargerð 1584. fundar bæjarráðs 15. október 2026

2. Fundargerð skipulagsráðs 5. október 2026 (2026010016)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Fundargerðin samþykkt án umræðu 11-0.

Fundargerð 398. fundar skipulagsráðs 5. október 2026 - aukafundur

3. Fundargerðir umhverfis- og framkvæmdaráðs 6. og 16. október 2026 (2026060411)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson, Hjörtur M. Guðbjartsson, Róbert Jóhann Guðmundsson og Alexander Ragnarsson.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fundargerð 4. fundar umhverfis- og framkvæmdaráðs - aukafundur 6. október 2026

Fundargerð 5. fundar umhverfis- og framkvæmdaráðs 16. október 2026

4. Fundargerð menntaráðs 9. október 2026 (2026010013)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Díana Hilmarsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fundargerð 400. fundar menntaráðs 9. október 2026

5. Fundargerð velferðarráðs 15. október 2026 (2026010017)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

„Þegar starfsemi dagdvalarinnar í Selinu hefur verið flutt úr húsnæðinu, hvað hyggst meirihlutinn gera við húsnæðið?“

Til máls tók Vilhjálmur Árnason.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fundargerð 458. fundar velferðarráðs 15. október 2026

6. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 15. október 2026 (2026010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Alexander Ragnarsson, Vilhjálmur Árnason, Hjörtur M. Guðbjartsson, Róbert Jóhann Guðmundsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fundargerð 312. fundar atvinnu- og hafnarráðs 15. október 2026

7. Iðjustígur 1, breyting á deiliskipulagi – fyrirspurn (2022030448)

Vilhjálmur Árnason tók til máls og fór yfir svör vegna fyrirspurnar Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur (S) sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar 6. október sl. - Iðjustígur 1, breyting á deiliskipulagi – fyrirspurn (2022030448) frá fundargerð skipulagsráðs frá 18. september 2026.

Fyrirspurn 1

Hvernig er áætlað að bregðast við mótmælum nágranna sem eru skráðir til heimils í öðru sveitarfélagi?

Eignaréttur spyr ekki um lögheimili. Vonandi er samhugur um það hjá öllum í bæjarstjórn að fara ekki að breyta því.

Skráning íbúa í sveitarfélaginu hefur ekkert með það að gera hvernig tekið var tillit til athugasemda heldur var tekið tillit til athugasemda íbúa þarna í nágrenninu. Húsið hefur verið lækkað, íbúðum fækkað og hlutfall bílastæða aukið. Tekið var tillit til allra innsendra athugasemda, óháð lögheimili, og þetta samtal var tekið við hönnuð á milli funda skipulagsráðs. Á milli funda komu fram gögn sem sýndu skuggavarp og vindgreiningu vegna fyrirhugaðra mannvirkja.

Fyrirspurn 2

Hvernig verður brugðist við aukinni umferð á þessum litla reit fyrir 85 auka íbúðir?

Í málefnasáttmála meirihlutans er kveðið á um að þrengja ekki fyrir einkabílnum og verður það haft að leiðarljósi við alla skipulagsvinnu í bænum.

1. Verður Njarðarbrautin tvöfölduð á þessum stað?

Njarðarbraut:

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um tvöföldun Njarðarbrautar á umræddum kafla. Rétt er þó að benda á að núverandi gatnamannvirki er í raun þegar þrjár akreinar á þessum hluta götunnar.

2. Verður Þjóðbraut tvöfölduð?

Þjóðbraut:

Göturými Þjóðbrautar býður upp á möguleika á tvöföldun hennar í framtíðinni. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um að hefja hönnun slíkrar framkvæmdar á þessu stigi.

Fyrirspurn 3

Í ljósi fordæmis, er Sjálfstæðisflokkurinn sáttur við að byggður sé blokkakjarni ef hann er undir 90 íbúðum? Á þá það sama við um Akkerið eða er það algjörlega önnur ákvörðun?

Meirihlutinn telur ekki málefnalegt að leggja þessi tvö uppbyggingarverkefni að jöfnu enda eru forsendur þeirra og staða í skipulagsferlinu ólíkar.

Þegar nýr meirihluti tók við stjórn sveitarfélagsins var skipulagsvinna vegna Iðjustígsreitsins komin mun lengra en vinna vegna Akademíureitsins, sem var enn á frumstigi skipulagsferlisins. Þetta á bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar að vita.

Árangurinn af aðkomu meirihlutans í Iðjustígreitnum er afgerandi: Byggingin verður lækkuð, byggingarmagn minnkað og bílastæðum fjölgað. Allt er þetta gert með tilliti til athugasemda nærsamfélagsins, enda er ein helsta gagnrýni sem meirihlutinn hefur tekið eftir er hve lítið samráð var við íbúa á síðustu árum við uppbyggingu í sveitarfélaginu. Við erum að breyta um kúrs og finnum fyrir ánægju með það meðal íbúa.

Fyrirspurn 4

Hvað mun fyrirhugaður bílakjallari rúma marga bíla fyrir íbúa?

Heildarfjöldi bílastæða á reitnum er áætlaður 155 og samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum er gert ráð fyrir að bílakjallari rúmi um 50–54 bifreiðar.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Kristján Pétur Kristjánsson og Hjörtur M. Guðbjartsson.

8. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs - fyrirspurn (2026020457)

Vilhjálmur Árnason tók til máls og fór yfir svör vegna fyrirspurnar Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur (S) sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar 6. október sl. - Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2026020457) frá fundargerð atvinnu- og hafnarráðs frá 17. september 2026.

Aksturstengingin milli Njarðvíkurhafnar og Reykjanesbrautar

Fyrirspurn 1

Hvar nákvæmlega stefndur sú vinna við að hanna Grænáshringtorgið?

Vinna við undirbúning og hönnun hringtorgs á gatnamótum Grænásvegar og Njarðarbrautar er komin vel á veg.

Deiliskipulag Njarðarbrautar, frá Stekk að Bolafótarhringtorgi, liggur fyrir og hefur staðsetning fyrirhugaðs hringtorgs verið ákveðin í samræmi við það. Unnið er að nánari hönnun framkvæmdarinnar, meðal annars hæðarlegu hringtorgsins, yfirferð á legu núverandi lagna og gerð kostnaðaráætlunar.

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 16. október síðastliðinn var eftirfarandi bókað:

„Umsögn barst frá samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis-og framkvæmdaráðs. Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að fullnaðarhönnun og kostnaðarmati á hringtorgi á gatnamótum Grænásvegar og Njarðarbrautar samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagi.“

Með þessari ákvörðun hefur verið staðfest að halda skuli áfram vinnu við fullnaðarhönnun og kostnaðarmat framkvæmdarinnar.

Að því gefnu að nauðsynlegt fjármagn fáist til verkefnisins er stefnt að því að unnt verði að hefja framkvæmdir á árinu 2027.

Fyrirspurn 2

Eru til teikningar sem hægt er að sjá annað en bókuð um vinnslu málsins?

Já. Fyrir liggja skipulagsgögn sem sýna fyrirhugaða staðsetningu og legu hringtorgsins.

Fyrirhuguð lega hringtorgsins hefur þegar verið kynnt í umhverfis- og framkvæmdaráði, annars vegar á þriðja fundi ráðsins 11. september og hins vegar á fimmta fundi þess 6. október 2026.

Fyrirspurn 3

Hvenær lýkur þeirri vinnu til að bæjarráð og bæjarstjórn geti fengið kynningu á útliti, stærð og staðsetningu hringtorgsins?

Ekki liggur að svo stöddu fyrir endanleg tímasetning á verklokum fullnaðarhönnunar.

Eins og fram hefur komið hefur umhverfis- og framkvæmdaráð falið sviðsstjóra að halda áfram fullnaðarhönnun og kostnaðarmati verkefnisins. Sú vinna er nauðsynleg forsenda þess að unnt sé að leggja fram heildstæða kynningu á endanlegri útfærslu framkvæmdarinnar ásamt áætluðum kostnaði.

Áfram verður unnið að framgangi verkefnisins með það að markmiði að fyrir liggi nægilega ítarlegar upplýsingar til að taka upplýsta ákvörðun um næstu skref, þar á meðal fjármögnun og mögulega framkvæmd á árinu 2027.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Alexander Ragnarsson og Hjörtur M. Guðbjartsson.

9. Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð - fyrirspurn (2026010010)

Vilhjálmur Árnason tók til máls og fór yfir svör vegna fyrirspurnar Hámundar Arnar Helgasonar (S) sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar 6. október sl. þegar fundargerð íþrótta-, tómstunda og menningarráðs frá 24. september 2026 var tekin til umræðu.

1. Fundarseta sviðsstjóra menningar- og þjónustusviðs

Fyrirspurn:

Af hverju situr sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs ekki alla fundi ráðsins á meðan íþrótta- og tómstundafulltrúi situr alla fundi, undirbýr þá og leiðir?

Svar:

Íþrótta- og tómstundafulltrúi er starfsmaður ráðsins. Sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs hefur seturétt á fundunum. Jafnframt hefur sviðsstjóri heimild til að taka með sér þá starfsmenn sviðsins sem hún telur að eigi erindi á fundi ráðsins, eftir því hvaða mál eru til umfjöllunar hverju sinni.

2. Sameining málaflokka í einu ráði

Fyrirspurn:

Er raunhæft að hafa þessa málaflokka saman í ljósi umfangs þeirra beggja? Gefst ráðinu nægur tími til umræðu og vandaðrar meðferðar og afgreiðslu mála? Formanni ráðsins var falið á fundi í ágúst að ræða þessar áhyggjur við bæjarstjóra. Hver er niðurstaða þess samtals?

Svar:

Markmiðið með því að hafa málaflokkana saman í einu ráði er að stuðla að heildstæðri umfjöllun um menningar-, íþrótta- og tómstundamál sveitarfélagsins. Mikilvægt er að tryggja að allir málaflokkarnir fái nægilegt svigrúm til umræðu, undirbúnings og vandaðrar afgreiðslu. Fyrirkomulag funda og dagskrár verður því haft til stöðugrar skoðunar með það að markmiði að tryggja skilvirka og faglega málsmeðferð.

Í samtali við formann ráðsins kom skýrt fram að fulltrúar meirihlutans telja sig vel í stakk búna til að halda utan um alla þrjá málaflokkana. Rétt er jafnframt að hafa í huga að ráðið er nýtekið til starfa og því er ótímabært að draga víðtækar ályktanir um hvernig fyrirkomulagið reynist.

Meirihlutinn mun að sjálfsögðu fylgjast með því hvernig starfið þróast og er opinn fyrir breytingum á fundarfyrirkomulagi og skipulagi ráðsins ef reynslan sýnir að slíkt geti styrkt starfsemina og bætt umfjöllun um einstaka málaflokka. Markmiðið er enda ekki að halda í tiltekið skipulag skipulagsins vegna, heldur að tryggja öfluga stefnumörkun ásamt faglegri, skilvirkri og vandaðri málsmeðferð.

3. Staða verkefnisins Grindavíkurleiðin

Fyrirspurn:

Hugmyndin um Grindavíkurleiðina vakti væntingar. Hvar stendur verkefnið, hvernig verður það útfært og hvernig verður framkvæmd þess háttað?

Svar:

Meirihlutinn hefur sett sér það skýra markmið að lækka kostnað við þátttöku í íþrótta-og tómstundastarfi og gera þannig fleiri börnum og ungmennum kleift að taka þátt. Engri einni leið, hvorki núna né fyrir kosningar, hefur verið lofað í þeim efnum. Það er skýr ásetningur meirihlutans að vinna þetta í góðu samtali við íþróttahreyfinguna.

Stjórnsýsluhópur og starfsfólk Reykjanesbæjar vinnur nú að því að skoða og útfæra leiðir til að lækka kostnað fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra. Grindavíkurleiðin er vissulega ein þeirra fyrirmynda sem horft er til í þeirri vinnu, en fleiri útfærslur eru einnig til skoðunar. Gert er ráð fyrir að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir og verði kynntar á næstu mánuðum.

4. Röðun dagskrármála á fundum ráðsins

Ábending bæjarfulltrúa Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur:

Bæjarfulltrúi lagði til að menningarmál og íþrótta- og tómstundamál skiptust á um að vera fremst á dagskrá funda ráðsins.

Svar:

Það er einmitt fyrirhugað að hafa þetta fyrirkomulag á fundum ráðsins, þannig að málaflokkarnir skiptist á um að vera fremst á dagskrá. Næsti fundur ráðsins er áætlaður 22. október nk. og er þá gert ráð fyrir að menningarmál verði tekin fyrst til umfjöllunar.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

10. Fjárhagsáætlun 2027-2030 – fyrirspurn (2026070036)

Vilhjálmur Árnason tók til máls og fór yfir svör vegna fyrirspurnar Samfylkingar sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar 6. október sl. undir 6. máli - Fjárhagsáætlun 2027-2030 – fyrirspurn.

Fyrirspurnin var í fimm liðum og eru eftirfarandi:

1.Hver er raunstaða fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir árið 2027?

Sviðsstjórar fengu afhent áætlunarskjölin í excel líkt og fyrir ári í byrjun september en án þess að fá útdeilt fjárhagsramma. Var septembermánuður nýttur til að gera áætlun á grundvelli aðferðar sem kallast núllgrunnsáætlun. Öll skjölin nema fyrir eitt svið bárust til fjármála- og stjórnsýslusviðs í fyrstu viku í október og skil á því síðasta barst 15. október 2027. Rýni umbóta- og hagræðingarteymis hefst svo í viku 43.

2.Eru komin drög að tekjuáætlun sem á eftir að afhenda fulltrúum minnihlutans?

Það eru ekki tilbúin drög að tekjuáætlun en vænta má að þau verði kynnt í bæjarráði í viku 44.

3.Eru komin drög að gjaldskrá?

1.Ef svo er, náum við markmiðum sem við staðfestum í ályktun allra sveitarfélaga á Íslandi á nýafstöðnu landsþingi um að allar okkar gjaldskrár rúmast að hámarki innan 2,5% hækkunar?

Sviðsstjórar hafa í vinnu sinni farið að þeim fyrir fyrirmælum að almenn gjaldskrá hækki ekki umfram 2,5% fyrir árið 2027.

4.Hvar er núllgrunnsáætlun sparnaðarteymisins?

Umbóta- og hagræðingarteymið gerir ekki núllgrunnsáætlun heldur hefur það hlutverk að rýna núllgrunnsáætlanir sviðsstjóra.

5.Hvaða fjárfestingum er búið að forgangsraða yfir á næsta ár?

Ekki er hafin sú vinna að forgangsraða fjárfestingum heldur er verið að kortleggja heildarþörfina til að hægt sé að byrja að meta forgangsröðun. Fjárhagsrammi fjárfestinga liggur ekki fyrir fyrr en búið er gera drög að rekstraráætluninni.

Forseti gaf orðið laust. 

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

„Er umbótarteymið ykkar í meirihlutanum að fara að taka loka ákvarðanir um einstök verkefni og jafnvel starfsfólk og vinnustaði án aðkomu bæjarráðs Reykjanesbæjar?

Hefur þetta teymi þau völd í boði framkvæmdastjóra sem fer með daglegan rekstur, að hér er ráðið starfsfólk Sjálfstæðisflokksins að taka pólitískar ákvarðanir um þetta sveitarfélag og verkefni þess?“

Til máls tók Kristján Pétur Kristjánsson.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20:10.