Sumarstörf hjá Reykjanesbæ

Fjölbreytt og spennandi sumarstörf eru í boði hjá Reykjanesbæ.
Sumarið er góður tími til að rækta nýja hæfileika og safna dýrmætri reynslu í góðu vinnuumhverfi.

Aldursviðmið og umsóknarfrestur eru mismunandi eftir störfum. Þú finnur því starfið sem hentar þér best.

Hlunnindi

Starfsfólk nýtur fjölbreyttra hlunninda sem styðja við vellíðan, menningu og hreyfingu í Reykjanesbæ.

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Vinnuskólinn

Sumarstörf hjá Vinnuskólanum eru fjölbreytt og fela í sér bæði skipulag og leiðsögn. Starfið hentar fólki sem vill vinna með öðrum, hafa yfirsýn, miðla þekkingu og leggja sitt af mörkum í daglegu starfi vinnuskólans.

  • Frístundaráðgjafi
  • Yfirflokkstjóri
  • Flokkstjóri

Sækja um →

 

Umhverfismiðstöðin

Sumarstörf hjá Umhverfismiðstöð eru fjölbreytt og snúast um að halda Reykjanesbæ snyrtilegum og aðgengilegum. Þetta er útivinna sem hentar fólki sem vill vera á hreyfingu og sjá árangurinn af eigin vinnu.

  • Verkamaður
  • Garðyrkja
  • Skógrækt
  • Flokkstjóri

Sækja um →

 

Íþróttamannvirki

Sumarstörf í íþróttamiðstöðvum Reykjanesbæjar snúast um öryggi, þjónustu og umsjón. Starfið hentar fólki sem vill vinna með fólki, bera ábyrgð og skapa öruggt og notalegt umhverfi í sundlaugum og íþróttamiðstöðvum.

  • Starfsfólk í Sundmiðstöð/Vatnaveröld

Sækja um →

 

 

 

Ævintýrasmiðja

Sumarstörf í Ævintýrasmiðjunni snúast um að styðja, hvetja og leiðbeina börnum og ungmennum með stuðningsþarfir. Starfið hentar fólki sem vill vinna með fólki, skapa öruggt umhverfi og taka þátt í að gera sumarið skemmtilegt og innihaldsríkt.

  • Starfsmaður í Ævintýrasmiðju

Sækja um →

 

 

Menningar- og þjónustusvið

Ert þú skapandi einstaklingur með áhuga á markaðsmálum og viðburðahaldi og í leit að sumarstarfi? Reykjanesbær leitar að markaðs- og viðburðafulltrúa í sumarstarf sem felur í sér að sækja og miðla efni á vef- og samfélagsmiðla sveitarfélagsins, setja upp auglýsingar og aðstoða við viðburðahald.

  • Markaðs- og viðburðarfulltrúi, sumarstarf

Sækja um →