Fræðsluefni og símaráðgjöf

Þær breytingar sem hafa orðið í okkar samfélagi vegna Covid-19 veirunnar hafa haft umtalsverð áhrif á daglegt líf barna og ungmenna. Sum börn og ungmenni eiga tiltölulega auðvelt með að takast á við þessar breytingar, á meðan þær reynast öðrum börnum og fjölskyldum erfiðar.

Sálfræðingar á fræðslusviði hafa útbúið hagnýtt efni fyrir foreldra undir yfirskriftinni Að takast á við óvissutíma. Efnið er gert aðgengilegt foreldrum á formi tveggja glærukynninga Hagnýt ráð til að viðhalda reglu og rútínu og Hagnýt ráð fyrir foreldra barna og ungmenna sem sýna óöryggi . Markmið fræðsluefnisins er að veita hjálpleg ráð sem geta nýst foreldrum að styðja við börnin sín á þessum óvissutímum. Það er okkar von að efnið sé aðgengilegt og nýtist sem flestum foreldrum.