- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes

Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi þann 25. júní 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Iðjustíg 1 samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Reiturinn afmarkast af Hafnargötu, Iðjustíg og Pósthússtræti. Inntak breytingarinnar er sameining lóða Iðjustígs 1 og hluta lóðar Hafnargötu 91, með tillögu að uppbyggingu hornhúss fyrir verslun, þjónustu og íbúðir á 4–7 hæðum, auk bílakjallara. Önnur svæði innan skipulagssvæðisins haldast óbreytt.
Gert er ráð fyrir verslun og þjónustu sem snýr að Hafnargötu og 91 íbúð í húsinu. Nýtingarhlutfall við Iðjustíg 1 verður 1,88 ofanjarðar en 0,57 neðanjarðar. Gert er ráð fyrir einu bílastæði á hverja 35 m² atvinnuhúsnæðis og 1,5 stæði á íbúð.
Nánari upplýsingar eru í Skipulagsgátt, á heimasíðu Reykjanesbæjar og veittar um netfangið skipulag@reykjanesbaer.is.
Umsagnir og athugasemdir skulu berast í Skipulagsgátt, málsnúmer 808/2026. Athugasemdafrestur er til og með 28. ágúst 2026.
Reykjanesbær, 15. apríl 2026
Skipulagsfulltrúi