Brunnur við Brunnstíg

Við Brunnstíg.

Endurgerð vatnsbrunns frá því um 1907. Afhjúpaður á Ljósanótt 2007.

Áður en brunnurinn við Brunnstíg, norðan Norðfjörðstúns, var grafinn voru tveir brunnar í Keflavík. Þeir voru við Náströnd og Íshússtíg. Þorgrímur Þórðarson læknir gat ekki fellt sig við stöðu vatnsmála í Keflavíkurþorpi, og í kjölfar tíðinda af taugaveikisýktu vatnsbóli í Reykjavík boðaði hann til fundar þar sem samþykkt var að Duusverslun myndi sjá til þess að ævinlega væru tvö vatnsból í tryggu og góðu standi í kauptúninu. Á móti féllust húsfeður, sem brunnana notuðu, á að greiða sérstakan vatnsskatt árlega með lóðarleigugjöldum í allt að 20 ár eða þar til útgjöld verslunarinnar ásamt vöxtum væru að fullu greidd.

Framkvæmdir hófust árið 1907 og var grafinn brunnur vestan Norðfjörðstúns. Þegar Duusverslun hóf að innheimta hinn umsamda vatnsskatt vildu heimilisfeður ekki borga. Í fyrsta lagi voru þeir ósáttir við að þurfa að greiða kostnað vegna vegar sem gerður var að nýja vatnsbólinu (og síðar varð Brunnstígur). Ennfremur biluðu brunndælurnar fljótlega svo oft var ógjörningur að ná vatni úr brunnunum. Þá neitaði verslunarstjóri hjá Duus að kosta viðgerðir og brunnurinn lá ónotaður næstu árin. Það var ekki fyrr en 1911 að hnúturinn leystist með nýrri lagasetningu Alþingis sem heimilaði að hreppsnefndir innheimtu vatnsskatt og í framhaldi breyttist viðhorfið til vatnsveitu í þorpinu.

Keflavíkurhreppur keypti vatnsbólin tvö af verslun H.P. Duus árið 1917 fyrir 1.500 krónur og annaðist þau eftirleiðis. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, vígði á Ljósanótt 2007 endurgerð brunnsins við Brunnstíg. Á brunninn er nú komin ný dæla. Árni gat þess við vígsluna að skortur á neysluvatni hefði lengi verið mikill vandi á Suðurnesjum og hafi þeir brunnar sem fyrir voru, áður en brunnurinn við Brunnstíg var gerður, verið rammsaltir. Sú gamansaga hafi því gengið lengi vel á Innnesjum að Suðurnesjamenn hefðu ævinlega með sér saltstauk til að strá í kaffið er þeir kæmu í höfuðstaðinn .

 

Ábyrgðaraðili: Byggðasafn Reykjanesbæjar