- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Föstudaginn 21. febrúar kl 16.30 verður myndin Gosi sýnd í Bókabíói Bókasafns Reykjanesbæjar.
Allir þekkja ævintýrið um Gosa. Tréskurðarmaðurinn barnlausi, Jakob, hittir á óskastund og fær ósk sína uppfyllta um að eignast lítinn dreng. Þarna reynist vera ótaminn og óstýrlátur spýtustrákur, Gosi að nafni. Hann óhlýðnast föður sínum og í stað þess að mæta í skólann stefnir Gosi á vit vafasamra ævintýra sem reka hann á ótrúlegustu staði.