Hvar vilt þú fá nýjar ruslatunnur?

Reykjanesbær ætlar að setja upp 18 nýjar ruslatunnur víðs vegar um bæjarfélagið og við viljum fá íbúana með í lið.

Við höfum opnað sérstaka síðu á kortasjá þar sem íbúar Reykjanesbæjar geta merkt inn á kort hvar þeir telja þörf á ruslatunnum. Þetta getur verið við gönguleiðir, leiksvæði, útivistarsvæði eða aðra fjölfarna staði þar sem gott væri að hafa tunnu við höndina.

Svona sendir þú inn tillögu

  1. Smelltu á ruslatunnu-táknið
    Uppi í vinstra horni kortsins er flipi með mynd af ruslatunnu. Smelltu á hann til að hefja skráningu á tillögu.
  2. Merktu staðsetninguna
    Smelltu á kortið þar sem þú telur hentugast að setja ruslatunnuna.
  3. Bættu við athugasemd
    Til dæmis hvers vegna þú telur þörf á ruslatunnu á þessum stað.
  4. Sendu inn tillöguna
    Smelltu á „Senda inn“ og tillagan fer beint til skoðunar hjá Reykjanesbæ.

Hægt er að senda inn fleiri en eina tillögu. Ferlið er einfalt og fljótlegt. 

Taktu þátt hér