Hvenær er mest að gera á kjörstað?

Til að auðvelda íbúum að skipuleggja komu sína höfum við tekið saman upplýsingar um aðsókn á kjörstað í Reykjanesbæ eftir tíma dags.

Grafið sýnir að mest aðsókn hefur verið frá hádegi og fram eftir síðdegi, en rólegra hefur verið fyrri hluta dags og undir lok kjördags. Ef þú hefur tök á að velja hvenær þú mætir á kjörstað getur verið gott að hafa þessar upplýsingar til hliðsjónar. Tölurnar í grafinu sýna fjölda kjósenda á hverju klukkutímabili.

Við hvetjum alla til að nýta kosningaréttinn.