Sumartilkynning

Með komu sumars taka gildi nokkrar árstíðabundnar breytingar í Reykjanesbæ.

Sumarakstur innanbæjarstrætó

Sumaráætlun innanbæjarstrætó tekið gildi 15. júní og stendur til 15. ágúst. Yfir sumarmánuðina verður ekið á 60 mínútna fresti í stað 30 mínútna eins og verið hefur yfir vetrartímann.

Vegna framkvæmda á Faxabraut eru jafnframt breytingar á leiðakerfi strætó. Lítill strætisvagn mun aka um Háholtið á meðan framkvæmdum stendur.

Uppfærðar tímatöflur má finna á Strætó.

Ferðavagnar á lóðum grunnskóla

Til að auka umferðaröryggi í íbúðagötum er heimilt að leggja ferðavögnum, svo sem hjólhýsum, fellihýsum og húsbílum, á lóðum grunnskóla Reykjanesbæjar frá 15. júní til 8. ágúst.

Undanfarið hafa íbúar orðið varir við ferðavagna sem lagt er í íbúðagötur bæjarins. Þar sem margir þeirra eru stórir geta þeir byrgð sýn ökumanna og skapað hættu í umferðinni.

Hér má finna upplýsingar um lóðir grunnskóla Reykjanesbæjar.

Við hvetjum eigendur ferðavagna til að nýta sér þetta úrræði yfir sumartímann.