Veituframkvæmdir við Skólaveg í sumar

Vegna veituframkvæmda á vegum Fráveitu Reykjanesbæjar og HS Veitna verður Skólavegur lokaður, ásamt gatnamótum Skólavegar og Hringbrautar, á tímabilinu 11. júní til 22. ágúst 2026.

Á meðan á framkvæmdum stendur er vegfarendum bent á að kynna sér hjáleiðir og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.