Deiliskipulagstillaga fyrir Hafnargötu 56 Reykjanesbæ

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Deiliskipulagstillaga fyrir Hafnargötu 56 Reykjanesbæ

Markmið deiliskipulags er að skilgreina reit á lóðinni fyrir nýbyggingu fyrir verslun, skrifstofu- og þjónustuhúsnæði, hótel og gististarfsemi eða íbúðir í samræmi við skilmála Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2015 –2030. Hús sem fyrir er á lóðinni er varðveitt, en heimilt að breyta innra fyrirkomulagi.

Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 31. janúar 2018 til 9. mars 2018. Tillögur eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 9. mars 2018.

Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á netfangið gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is

Reykjanesbæ 31. janúar 2018
Skipulagsfulltrúi

Deiliskipulagstillaga - Hafnargata 56