- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nýjasti skólinn í Reykjanesbæ mun rísa í Dalshverfi í Innri Njarðvík. Niðurstaða undirbúningshóps sem skilaði skýrslu í júní 2016 var að byggður verði heildstæður skóli, leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð. Skólinn sem staðsettur er í austasta hluta bæjarins á jafnframt að geta þjónað grenndarsamfélaginu sem einskonar menningarmiðstöð.
Skólinn á að bera þess merki að horft sé til framtíðar um leið og kröfum samtímans er mætt. Megin einkenni skólans verður sveigjanleiki, í kennsluháttum, í nýtingu rýmis, í skipulagi vinnudags og skilum á milli skólastiga.
Efnt var til samkeppni um nafn á nýja skólann haustið 2017 og varð Stapaskóli fyrir valinu.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)