395. fundur

05.02.2026 08:30

Fundargerð 395. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa haldinn að Grænásbraut 910 5. febrúar 2026 kl. 08:30

Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Björk Lind Snorradóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.

1. Njarðvíkurheiði (2026020030)

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir einum 7,5m x 2,5m gám við urðunarstað á Njarðvíkurheiði. Lögð fram mynd sem sýnir staðsetningu gáms.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 5. febrúar 2027.

2. Bergvegur 11 (2026020028)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir einbýlishúsi sbr. aðaluppdrætti Beimar dags. 26. janúar 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

3. Klettatröð 3 (2026010478)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir fjarskiptamastri og 13 m2 tengiskúr sbr. aðaluppdrætti VEB Verkfræðistofu dags. 22. janúar 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

4. Bakkastígur 20 (2026010477)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sbr. aðaluppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 22. janúar 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

5. Bogatröð (2026010389)

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir einum 20 feta gám við enda Bogatraðar við öryggissvæði LHG. Lögð fram mynd sem sýnir staðsetningu gáms.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 5. febrúar 2027.

6. Suðurgata 1 (2025110405)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir bílgeymslu sbr. aðaluppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 21. nóvember 2025. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið og grenndarkynningu er lokið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

7. Holtsgata 31 (2025110360)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir viðbyggingu sbr. aðaluppdrætti RISS Verkfræðistofu dags. 05. september 2025. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið og grenndarkynningu er lokið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

8. Fuglavík 27 (2025110266)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir iðnanaðrhúsnæði sbr. aðaluppdrætti RISS Verkfræðistofu dags. 15. ágúst 2025. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið og grenndarkynningu er lokið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

9. Hólagata 20 (2025090463)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir LED skilti sbr. aðaluppdrætti Teiknistofunnar Traðar dags. 26. september 2025. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið og grenndarkynningu er lokið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

10. Greniteigur 41 (2025090306)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir viðbyggingu ofan á svalir sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 28. janúar 2025. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið og grenndarkynningu er lokið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

11. Brekadalur 63 (2025080087)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir einbýlihúsi sbr. aðaluppdrætti Beimar dags. 06. ágúst 2025. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið og grenndarkynningu er lokið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:00.