397. fundur

10.03.2026 08:30

Fundargerð 397. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa haldinn að Grænásbraut 910 10. mars 2026 kl. 08:30

Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Björk Lind Snorradóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Aron Ingi Valtýsson fulltrúi og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.

1. Grófin 17A (2026030117)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir breytingum innanhúss. sbr. aðaluppdrætti Riss verkfræðistofu dags. 15. desember 2025.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.

2. Stakksbraut 9 (2026030084)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir niðurrifi á matshlutum 04, 06, 07, 08 og 09.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

3. Umsókn um götu- og torgsölu / Hafnargata 44-46 (2026020246)

Sótt er um götu- og torgsöluleyfi til 1 árs fyrir matarvagni við Hafnargötu 44-46.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 1. mars 2027.

4. Umsókn um stöðuleyfi / Hafnargata 44-46 (2026020142)

Sótt er um götu- og torgsöluleyfi frá 1. mars 2026 til 30. september 2026 fyrir matarvagni við Hafnargötu 44-46. Samþykki lóaðrhafa liggur fyrir.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 30. september 2026.

5. Keilisbraut 750, 753, 754 og DRE-720 (2026010621)

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Keilisbraut 750, 753, 754 og DRE-720.

Merkjalýsing staðfest.

6. Hafnarbakki 10 (2021050189)

Lagðar fram breytingateikningar á áður samþykktum byggingaráformum. Grenndarkynning hefur farið fram og lauk henni án athugasemda.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 08:52.