399. fundur

16.04.2026 08:30

399. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa var haldinn að Grænásbraut 910 þann 16. apríl 2026 kl. 08:30

Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Björk Lind Snorradóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.

1. Reykjanesvegur 40 (2026040111)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir kvistum á þak Reykjanesvegar 40 sbr. uppdrætti Beims dags. í desember 2025.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

2. Hafnagata 27 (2026040110)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir nýbyggingu á einni hæð sbr. aðaluppdrætti K.J. Ark dags. 28. janúar 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

3. Nónvarða 3 (2026040090)

Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi fyrir lítilsháttar breytingu á burðarvirki.

Embætti byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

4. Hafnargata 77 (2026040030)

Send inn teikning af bílskúr sem byggður var árið 1948 í tengslum við gerð eignaskiptayfirlýsingar.

Embætti byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

5. Völuás 15 (2026040023)

Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi fyrir að klæða eignina að utan.

Embætti byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

6. Fuglavík 19 (2026040019)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir atvinnuhúsnæði sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 31. mars 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

7. Vatnsholt 14 (2026040002)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir bílskýli, viðbyggingu og breyttu innra skipulagi íbúðar sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 19. mars 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

8. Vallargata 7 (2026030510)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir viðbyggingu og nýjum bílskúr sbr. aðaluppdrætti JeES dags. 24. febrúar 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

9. Stakksbraut 9 (2026030448)

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Stakksbraut 9.

Merkjalýsing staðfest.

10. Hafnargata 17 (2026030348)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir breytingum á innra skipulagi í gistiheimili og skrifstofur/verslun sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 09. mars 2026.

Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemd við að í húsinu sé gistiheimili og skrifstofur/verslun.

Embætti byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið. Skila þarf inn aðaluppdráttum ásamt öðrum gögnum með byggingarleyfisumsókn.

11. Kirkjuvegur 37 (2025120346)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir stækkun á bílgeymslu sbr. aðaluppdrætti AVJ teiknistofu dags. 20. ágúst 2023. Grenndarkynningu er lokið og umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

12. Óleyfisgámar (2025020071)

Álagning dagsekta vegna óleyfisgáms við Grófina 10A.

Embætti byggingarfulltrúa samþykkir að beita dagsektum á lóð númer 10A við Grófina vegna óleyfisgáma.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:22.