400. fundur

05.05.2026 08:30

400. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa var haldinn að Grænásbraut 910 5. maí 2026 kl. 08:30

Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Aron Ingi Valtýsson fulltrúi og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.

1. Vesturgata 2-4, 6-8 og Vesturbraut 15 (2026040358)

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Vesturgötu 2-4, 6,8 og Vesturbraut 15.

Erindi frestað. Uppfærð gögn vantar.

2. Álsvellir 8 (2026040310)

Sótt er um stöðuleyfi til 30. september 2026 fyrir einum 20 feta gámi.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 5. maí 2027.

3. Njarðarvellir 2 (2026040206)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sbr. uppdrætti THG arkitekta dags. 23. febrúar 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

4. Klettatröð 19 (2026040205)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir olíuskilju sbr. uppdrætti Glóru dags. 27. mars 2026.

Erindi frestað. Vísað í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

5. Hringbraut 130 (2026040204)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir tengibyggingu milli lögreglustöðvar og tímabundis húsnæðis sbr. uppdrætt Glóru dags. 24. mars 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

6. Móavellir 3 og 3A (2026030112)

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Móavelli 3 og 3A.

Merkjalýsing staðfest.

7. Bergvegur 11 (2026020028)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir einbýlishúsi sbr. aðaluppdrætti Beims dags. 26. janúar 2026. Grenndarkynningu er lokið og umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

8. Sjávargata 33A (2026020027)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir fjölgun á íbúðum sbr. aðaluppdrætti GLóru dags. 02. febrúar 2026. Grenndarkynningu er lokið og umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:12.