402. fundur

11.06.2026 08:30

402. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa var haldinn að Grænásbraut 910 11. júní 2026 kl. 08:30

Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Björk Lind Snorradóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Aron Ingi Valtýsson fulltrúi og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.

Að auki sátu fundinn Stefanía Gunnarsdóttir skjalastjóri og Erna María Svavarsdóttir skjalavörður.

1. Njarðarvellir 4 (2026060151)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sem felast í því að innrétta rými á jarðhæð fyrir dagdvöl fyrir aldraða sbr. aðaluppdrætti THG arkitekta dags. 5. júní 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

2. Brekkustígur 11 (2026060094)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir tímabundnum kennslustofum á lóð sbr. aðaluppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 3. júní 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

3. Sölvalaut (2026060093)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 184 m2 nýbyggingu ætlaða sem búningaaðstöðu sbr. aðaluppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 3. júní 2026.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.

4. Sólvallagata 11 (2026060070)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sem felast í því að endurinnrétta hluta húss úr gistirýmum í 3 íbúðir sbr. aðaluppdrætti AM Design dags. 3. júní 2026.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.

5. Suðurbraut 758 (2026050377)

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Suðurbraut 758.

Merkjalýsing staðfest.

6. Vesturgata 2-4, 6-8 og Vesturbraut 15 (2026040358)

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Vesturgötu 2-4, 6,8 og Vesturbraut 15.

Merkjalýsing staðfest.

7. Grófin 17A (2026030117)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sbr. aðaluppdrætti RISS dags. 29. apríl 2026, breytt 28. maí 2026.

Erindi frestað. Vísað til athugasemdarskýrslu byggingarfulltrúa.

8. Hafnargata 30 (2025070084)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss. Op verður á milli matshluta 0101 og 0102 sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 5. júní 2026.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:06.