- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Björk Lind Snorradóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Aron Ingi Valtýsson fulltrúi og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.
Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Bolafót 21, 23, 25 og 27.
Merkjalýsing staðfest.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir niðurrifi á grillskála sbr. fyrirspurn dags. 23. júní 2026.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir tengibyggingu milli Keilisbrautar 753 og 754. Jafnframt er sótt um leyfi til að innrétta byggingar 753 og 754 sem hjúkrunarheimili sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 23. júní 2026.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi sbr. aðaluppdrætti D.Hildiberg dags. 15. júní 2026.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi fyrir lítilsháttar breytingum á innra fyrirkomulagi sbr. aðaluppdrætti Sigurðar H. Ólafssonar dags. 18. júní 2026.
Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum á innra skipulagi á kennslustofum sbr. aðaluppdrætti Tækniþjónustunnar SÁ dags. 6. mars 2026.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir fimmtán 40 feta gámum.
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 25. júní 2027.
Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir vinnu- og kaffiskúr á horni Réttarvegar, lögð fram mynd sem sýnir staðsetningu skúrs. Samþykki nágranna liggur fyrir.
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 25. júní 2027.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir tengibyggingu tímabundinnar lögreglustöðvar við bílgeymslu lögreglustöðvarinnar við Hringbraut sbr. uppdrætti Glóru dags. 24. mars 2026. Erindi var samþykkt skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 3 á 390. fundi umhverfis- og skipulagsráðs.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir bílskýli, viðbyggingu og breyttu innra skipulagi íbúðar sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 19. mars 2026. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda, engar athugasemdir bárust.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingu á LED verðskilti. Ljósbúnaður verður endurnýjaður og skiltaflötur stækkaður sbr. aðaluppdrætti Teiknistofunnar Traðar dags. 22. janúar 2026. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti erindið eftir grenndarkynningu til reynslu til eins árs.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir atvinnuhúsnæði sbr. aðaluppdrætti Eflu dags. 11. júní 2026. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir tímabundnum vinnubúðum.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss. Op verður á milli matshluta 0101 og 0102 sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 5. júní 2026.
Erindi frestað. Eignaskiptayfirlýsingu vantar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:36