405. fundur

23.07.2026 09:00

405. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa var haldinn að Grænásbraut 910 23. júlí 2026 kl. 09:00

Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Hilmar Örn Arnórsson verkefnastjóri byggingarfulltrúa og Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Að auki sat fundinn Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Þórustígur 22 (2026070163)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir viðbyggingu sbr. aðaluppdrætti GJG DESIGN ehf. dags. 14.júlí 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

2. Brekadalur 55 (2026070153)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir nýbyggingu sbr. aðaluppdrætti Riss verkfræðistofu dags. 20. janúar 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

3. Fitjabraut 10 og 18 (2026070134)

Umsókn um byggingarleyfi fyrir steypta girðingu. sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 13. júlí 2026.

Erindi frestað. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða vantar.

4. Lónsbraut 1 (2026070116)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir nýbyggingu sbr. aðaluppdrætti Arkitektastofunnar OG ehf.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

5. Flugvellir 8 (2026070115)

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir þremur 20 feta gámum.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 23. júlí 2027.

6. Fuglavík 19 (2026040019)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir atvinnuhúsnæði sbr. uppfærða aðaluppdrætti Glóru dags. 13. maí 2026. Grenndarkynningu er lokið og umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

7. Njarðvíkurbraut 25 (2026020179)

Merkjalýsing fyrir Njarðvíkurbraut 25.

Við úrvinnslu máls kom í ljós að merkjalýsing fyrir Njarðvíkurbraut 25 er byggð á ófullnægjandi gögnum, staðfesting á merkjalýsingu er því afturkölluð.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:17.