- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir fjarskiptasúlu á þak stigahúss sbr. aðaluppdrætti VEB verkfræðistofu dags. 3. júní 2026.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.
Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi fyrir breytingum innanhúss sbr. aðaluppdrætti Sigurðar H. Ólafssonar dags. 25. ágúst 2026.
Embætti byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir tengibyggingu milli Keilisbrautar 753 og 754. Jafnframt er sótt um leyfi til að innrétta byggingar 753 og 754 sem hjúkrunarheimili sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 1. september 2026. Grenndarkynningu er lokið og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir 23.998 m2 atvinnuhúsnæði sbr. aðaluppdrætti T.ark dags. 15. maí 2026.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa á merkjalýsingu fyrir Selvík 5 og 9.
Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:29.