- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Hilmar Örn Arnórsson verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Sigurður Þór Arason fulltrúi og ritari.
Sótt er um stöðuleyfi til tveggja ára fyrir 90 brúttótonna bát á æfingasvæði Brunavarna Suðurnesja.
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 23. september 2027. Vakin er athygli á því að stöðuleyfi eru veitt til eins árs í senn, sækja þarf um nýtt stöðuleyfi áður en gildistími rennur út.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I til breytinga innanhúss, úrbóta á brunavörnum ásamt endurnýjun og stækkun loftræsiskerfis sbr. aðaluppdrætti Teiknistofunnar Traðar dags. 16. september 2026.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa á merkjalýsingu fyrir Trönudal 2-24, Aspardal 2-4 og Dalsbraut 20.
Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir glerskála á milli Móavalla 3 og 5 sbr. aðaluppdrætti THG arkitekta dags. 15. maí 2025.
Erindi frestað. Vísað í athugasemdaskýrslu byggingarfulltrúa.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:23.