- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður, Alexander Ragnarsson, Kristján Jóhannsson, Sigurður Guðjónsson og Jón Már Sverrisson.
Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.
Á fundinn mætti Ágúst Kristinsson endurskoðandi frá PricewaterhouseCoopers ehf., endurskoðunarfyrirtæki Reykjaneshafnar. Ársreikningur Reykjaneshafnar vegna starfsársins 2025 var lagður fram ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoðenda. Helstu niðurstöður rekstrarreiknings eru eftirfarandi:
Rekstrartekjur.......................................... kr. 465.153.510.-
Rekstrargjöld...........................................kr. 283.139.719.-
Hagnaður fyrir afskriftir og vexti............. kr. 182.013.791.-
Afskriftir mannvirkja og annarra eigna.... kr. -44.583.430.-
Fjármagnsliðir..........................................kr. -48.589.077.-
Rekstrarhagnaður ársins.........................kr. 88.841.284.-
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir ársreikning Reykjaneshafnar og vísar honum til samþykktar á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Ársskýrsla atvinnu- og hafnarsviðs vegna ársins 2025 lögð fram.
Fylgigögn:
Ársskýrsla atvinnu- og hafnarsviðs 2025
Lagðar fram verkfundargerðir 3. og 4. funda frá 25. febrúar og 16. mars 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum.
Farið yfir stöðu mála við vinnslu á aðal- og deiliskipulagi í og upp af Njarðvíkurhöfn. Einnig var farið yfir þá þróun sem þarf að eiga sér stað á svæðinu í uppbyggingar- og skipulagsmálum svo framtíðarsýn Reykjaneshafnar til næstu tíu ára á svæðinu gangi eftir.
Atvinnu- og hafnarráð beinir því til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar að horft verði til hugmynda Reykjaneshafnar varðandi landfyllingu sunnan við nýjan brimvarnargarð við Njarðvíkurhöfn við næstu endurskoðun á aðalskipulagi Reykjanesbæjar, samanber framtíðarsýn Reykjaneshafnar til ársins 2035. Atvinnu- og hafnarráð felur Halldóri K. Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, að koma þessari ósk á framfæri ásamt viðeigandi gögnum.
Fylgigögn:
Njarðvíkurhöfn - vinnslutillaga aðalskipulags
Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar á Suðurbakka Helguvíkurhafnar.
Fylgigögn:
Helguvíkurhöfn - skipulagsuppdráttur
Fundargerð 26. fundar samráðsnefndar um þróun hafnarsvæða frá 19. mars 2026 lögð fram.
Aðalfundur Cruise Iceland fór fram fimmtudaginn 12. mars sl. og sótti Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fundinn fyrir hönd Reykjaneshafnar. Fór hann yfir það sem fram kom á fundinum.
Fylgigögn:
Aðalfundur Cruise Iceland 12. mars 2026 - dagskrá
Lagt fram minnisblað AECO, Association of Arctic Expedition Cruise Operators, er varðar virðisaukaskatt og skemmtiferðaskip. Einnig farið yfir markaðssetningu Keflavíkurhafnar fyrir smærri skemmtiferðaskip.
Fylgigögn:
Virðisaukaskattur og skemmtiferðaskip
Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 16. febrúar 2026 lögð fram.
Fylgigögn:
Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands 16. febrúar 2026
Lögð fram ársskýrsla viðskipavinar frá Straumlind ehf. vegna raforkukaupa Reykjaneshafnar 2025.
Á 304. fundi sínum þann 22. janúar sl. samþykkti atvinnu- og hafnarráð f.h. Reykjaneshafnar að taka þátt í samstarfi með Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og KADECO um uppbyggingu hringrásariðngarðs við Helguvíkurhöfn og tilnefndi þar tvo fulltrúa. Fyrir liggur ósk um að tilnefndur verði þriðji fulltrúinn frá Reykjaneshöfn.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að tilnefna Alexander Ragnarsson sem þriðja fulltrúa Reykjaneshafnar í samstarfshópinn.
Tölvupóstur dags. 13. mars 2026, frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, þar sem óskað er umsagnar um drög að Atvinnuramma Suðurnesja 2026-2030 þar sem leitast er við að ná heildarsýn á atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum út frá áherslum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, KADECO og annarra hagaðila.
Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með viðkomandi drög og telur þær áherslur sem þar koma fram varðandi árangursmælingar og mælaborð af hinu góða við mat á þróun atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum.
Lögð fram skýrslan Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?. Í skýrslunni eru lagðar fram sjö tillögur um aðgerðir stjórnvalda sem væru til þess fallnar að styrkja forsendur fyrir strandsiglingum og vöruflutningum á sjó.
Fylgigögn:
Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til? - skýrsla starfshóps
Tölvupóstur, dags. 12. mars 2026, þar sem óskað er umsagnar um mál nr. 0118/2026 í skipulagsgátt; Helguvíkurhöfn – breyting á deiliskipulagi.
Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemdir við viðkomandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Helguvíkur.
Fylgigögn:
Með því að smella hér má skoða málið Helguvíkurhöfn - breyting á deiliskipulagi í skipulagsgátt
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. apríl 2026.