309. fundur

25.06.2026 15:00

309. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar var haldinn á skrifstofu Reykjaneshafnar að Víkurbraut 11, fimmtudaginn 25. júní 2026 kl. 15:00

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson formaður, Tryggvi Þór Bragason, Jón Ragnar Reynisson, Sigurður Guðjónsson og Magnús Einþór Áskelsson.

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, sem ritaði fundargerð.

Rúnar Fossádal Árnason boðaði forföll og sat Jón Ragnar Reynisson fundinn í hans stað.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Sólmyrkvi 12. ágúst 2026 (2025040174). Fjallað var um málið undir dagskrálið 16.

1. Atvinnu- og hafnarráð kjörtímabilið 2026-2030 (2026060327)

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 2. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í atvinnu- og hafnarráði kjörtímabilið 2026-2030:

Aðalmenn: Alexander Ragnarsson (D), Tryggvi Þór Bragason (D), Rúnar Fossádal Árnason (M), Sigurður Guðjónsson (B) og Magnús Einþór Áskelsson (S).

Varamenn: Hjörleifur Stefánsson (D), Jón Már Sverrisson (D), Jón Ragnar Reynisson (M), Ásta María Guðmundsdóttir (B) og Friðþjófur Helgi Karlsson (S).

Bæjarstjórn kaus Alexander Ragnarsson sem formann atvinnu- og hafnarráðs.

Samkvæmt 50. grein samþykktar um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar skal á fyrsta nefndarfundi kjörtímabilsins kjósa varaformann og ritara viðkomandi nefndar.

Rúnar Fossádal Árnason var kjörinn varaformaður atvinnu- og hafnarráðs.

Tryggvi Þór Bragason var kjörinn ritari atvinnu- og hafnarráðs.

Fylgigögn:

Atvinnu- og hafnarráð 2026-2030 - bókun bæjarstjórnar 2. júní 2026

2. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)

Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu fá siðareglurnar til undirritunar því til staðfestingar.

3. Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 2026-2030 (2026060218)

Farið var yfir þau atriði í fyrirliggjandi málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem snúa að atvinnu- og hafnarmálum.

4. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður (2023080391)

Lagðar fram verkfundargerðir 8., 9., 10. og 11. fundar frá 6. og 20. maí og frá 1. og 18. júní 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum.

Fylgigögn:

Sjóvarnargarður við Njarðvíkurhöfn - yfirlitsmynd

5. Njarðvíkurhöfn - skipulag (2025110300)

Farið yfir stöðuna á vinnslu aðal- og deiliskipulags í og upp af Njarðvíkurhöfn.

Fylgigögn:

Aðalskipulag Njarðvíkurhafnar - vinnslutillaga

6. Hafnarreglugerð Reykjaneshafnar – afmörkun hafnarsvæða (2026060328)

Þann 22. júní 2024 var samþykkt á Alþingi breyting á hafnarlögum nr. 61/2003 þar sem m.a. var gerð breyting á 4. grein laganna varðandi mörk hafnarsvæðis á sjó. Í framhaldi af þessari breytingu hefur Reykjaneshöfn verið að endurskilgreina viðkomandi mörk, m.a. í samráði við Vegagerðina og Samgöngustofu. Í eldri útgáfu laganna var um eina afmörkun að ræða en í núverandi lögum skal stærð og afmörkun hafnarsvæðis á sjó skilgreinast í fjögur svæði: skipulagssvæði á sjó sem telst jafnframt vera mengunarlögsaga hafnarsvæðis, hafnsögu-svæði, þjónustusvæði og hafnarsvæði farþegaskipa. Lögð er fram tillaga að nýrri skilgreiningu fyrir Reykjaneshöfn á mörkum hafnarsvæðis á sjó.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að vinna málið áfram.

Fylgigögn:

Breyting á hafnalögum
Hafnarreglurgerð fyrir Reykjaneshöfn
Tillaga að breytingu á hafnarreglugerð Reykjaneshafnar

7. Njarðarbraut milli Norður- og Suður-Fitja - aðal- og deiliskipulag - umsögn (2026060329)

Tölvupóstur frá skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar, dags. 8. júní 2026, þar sem hann óskar umsagnar fyrir hönd umhverfis- og skipulagsráðs um breytingu á skipulagi er varðar Njarðarbraut milli Norður- og Suður-Fitja.

Atvinnu- og hafnarráð óskar eftir nánari kynningu á viðkomandi skipulagi og frestar því umsögn.

8. Cruise Iceland (2026060330)

Fréttabréf Cruise Iceland frá 12. júní lagt fram. Þar koma m.a. fram helstu áskoranir sem þessi grein ferðaþjónustunnar stendur frammi fyrir á komandi misserum og árum.

Fylgigögn:

Fréttabréf Cruise Iceland 12. júní 2026

9. Cruise Europe (2026060331)

Lögð fram fundargerð aðalfundar Cruise Europe sem fram fór í Reykjavík þann 27. maí sl., ásamt fjárhagsáætlun ársins.

10. Skemmtiferðaskip (2026020459)

Í byrjun sumars voru fimm skemmtiferðaskip bókuð til hafnar hjá Reykjaneshöfn á þessu sumri. Vegna óvæntra atvika afbókaði sig skip sem væntanlegt var þann 29. maí sl., en eftir standa fjórar bókanir, þrjár í ágúst og ein í september. Tvær þessara bókana kalla á þjónustu landamæraeftirlits við komu þar sem viðkomandi skip eru að koma frá landi utan Schengensvæðisins og hafa viðkomandi yfirvöld verið látin vita af því.

Atvinnu- og hafnarráð leggur áherslu á að móttaka viðkomandi skipa sé til fyrirmyndar og þau fái þá þjónustu sem þau þurfa á að halda. Atvinnu- og hafnarráð telur sérstaklega mikilvægt að geta sinnt skipum sem þurfa á landamæraeftirliti að halda þar sem samspil milli slíkra skipa og alþjóðaflugvallarins getur skapað einstök viðskiptatækifæri fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu í framtíðinni. Meinbugir á slíkri þjónustu geta skaðað viðkomandi uppbyggingu og er það trú atvinnu- og hafnarráðs að allir þeir aðilar sem þurfa að koma að þessu máli vilji ekki sjá það gerast.

11. Hafnasamband Íslands - fundargerð stjórnar 29. maí 2026 (2026020458)

Lögð fram fundargerð 483. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 29. maí 2026.

Fylgigögn:

Fundargerð 483. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands 29. maí 2026

12. K64 Hringrásariðngarður (2023100396)

Tölvupóstur frá Kadeco, dags. 11. júní 2026, þar sem boðað er til fundar í faghópi K64 Hringrásariðngarðs. Atvinnu- og hafnarráð skipaði fulltrúa Reykjaneshafnar í viðkomandi faghóp á síðasta kjörtímabili en það umboð er útrunnið og því þörf á að skipa nýja fulltrúa frá Reykjaneshöfn.

Atvinnu- og hafnarráð skipar Alexander Ragnarsson, Sigurður Guðjónsson og Halldór K. Hermannsson sem fulltrúa Reykjaneshafnar í faghóp K64 Hringrásariðngarðs.

13. Samgönguáætlun 2026-2030 (2025120114)

Samgönguáætlun 2026-2040, með framkvæmdaáætlun 2026-2030, var samþykkt á Alþingi 12. júní sl., en Reykjaneshöfn hafði óskað eftir stuðningi úr Hafnabótasjóði til hafna-framkvæmda í viðkomandi áætlun. Í samþykktri samgönguáætlun er stuðningur við tvö af þessum verkefnum, bæði með upphafsár 2030.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með það að viðkomandi verkefni séu í samþykktri samgönguáætlun, en hefði kosið að upphafsár þeirra framkvæmda væri fyrr en þar kemur fram.

Fylgigögn:

Samgönguáætlun 2026-2040 - samþykkt í júní 2026

14. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2026020457)

Á síðasta kjörtímabili var sett á laggirnar samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs þar sem málefni þvert á starfssvið þessara nefnda voru tekin til umfjöllunar. Sama fyrirkomulag verður á þessu kjörtímabili en vegna breyttrar nefndaskipunar þá mun samráðsnefndin verða skipuð fulltrúum þriggja nefnda: atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Atvinnu- og hafnarráð skipar Alexander Ragnarsson, Sigurð Guðjónsson og Halldór K. Hermannsson sem fulltrúa atvinnu- og hafnarráðs i samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs.

15. Upplýsingagjöf sviðsstjóra (2026010379)

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Í upplýsingagjöf sviðsstjóra er bent á að Isavia virðist stefna á uppbyggingu á hóteli með yfir 200 herbergjum á flugvallarsvæði alþjóðaflugvallarins. Þessi hugmynd vekur upp spurningar varðandi hlutverk Isavia og hvort viðkomandi stofnun sé ekki komin út fyrir starfssvið sitt. Uppbygging hótels innan áhrifasvæðis Isavia skerðir samkeppnisstöðu annarra gistimöguleika á Suðurnesjum ef af verður og getur haft neikvæð áhrif á uppbyggingu ferðaþjónustuaðila. Atvinnu- og hafnarráð telur rétt að bæjaryfirvöld óski eftir fundi með forsvarsmönnum félagsins til að fá nánari skýringar á málinu.

16. Sólmyrkvi 12. ágúst 2026 (2025040174)

Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sýnilegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954. Reykjanesskagi verður einn eftirsóttasti áfangastaður landsins til að fylgjast með þessum einstaka náttúruviðburði, enda stendur almyrkvinn þar lengur en víða annars staðar á landinu.

Þegar hefur allt skráð gistirými á svæðinu selst upp og búist er við að mikill fjöldi gesta leggi leið sína á Reykjanesið þennan dag. Gera má ráð fyrir aukinni umferð og mikilli ásókn í þjónustu, svo sem veitingastaði, verslanir, bensínstöðvar og aðra þjónustu.

Atvinnu- og hafnarráð hvetur fyrirtæki, stofnanir og aðra þjónustuaðila á Reykjanesi til að undirbúa sig vel fyrir daginn, tryggja gott aðgengi að þjónustu eftir fremsta megni og taka vel á móti þeim fjölmörgu gestum sem munu heimsækja svæðið. Ráðið hvetur þjónustuaðila til að fara yfir opnunartíma og mönnun, bæði á viðburðardeginum og dagana í kring, með hliðsjón af þeirri auknu eftirspurn sem búast má við. Almyrkvinn er einstakt tækifæri til að sýna þá gestrisni og öflugu þjónustu sem einkennir Reykjanes og skapa gestum eftirminnilega upplifun.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarráðs 2. júlí 2026.