310. fundur

20.08.2026 15:00

310. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar haldinn á skrifstofu Reykjaneshafnar að Víkurbraut 11 fimmtudaginn 20. ágúst 2026 kl. 15:00

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson formaður, Rúnar Fossádal Árnason, Tryggvi Þór Bragason, Sigurður Guðjónsson og Magnús Einþór Áskelsson.

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, sem ritaði fundargerð.

1. Fjárhagsáætlun ársins 2026 (2026070036)

Farið yfir stöðuna á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2026.

Fylgigögn:

Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031

2. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður (2023080391)

Lagðar fram verkfundargerðir 12., 13. og 14. fundar frá 3. og 16. júlí og 12. ágúst 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum.

Fylgigögn:

Sjóvarnargarður við Njarðvíkurhöfn - útlitsmynd

3. Njarðvíkurhöfn - skipulag (2025110300)

Farið yfir stöðuna á vinnslu aðal- og deiliskipulags í og upp af Njarðvíkurhöfn.

Fylgigögn:

Tillaga að deiliskipulagi við Njarðvíkurhöfn - Norðursvæði
Njarðvíkurhöfn - tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar

4. Sjávargata 38 – stækkun lóðar (2026070194)

Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að senda í grenndarkynningu ósk eiganda fasteignarinnar Sjávargötu 38 um breytingu á húsnæði og stækkun lóðar, en Reykjaneshöfn er landeigandi á svæðinu.

Reykjaneshöfn er að ljúka vinnu við deiliskipulag yfir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn og óskir eigenda Sjávargötu 38 um lóðarstækkun falla ekki að því deiliskipulagi. Atvinnu- og hafnarráð hafnar því framkominni ósk en bendir jafnframt á að möguleiki er á minni stækkun lóðarinnar þannig að hún falli að nýju deiliskipulagi.

Fylgigögn:

Sjávargata 38 - tillaga að breyttu lóðarblaði

5. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki (2024040273)

Farið yfir stöðuna á hönnun útboðsgagna vegna uppbyggingar á nýrri hafnaraðstöðu og eldsneytisbirgðastöð á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.

Fylgigögn:

Breyting á deiliskipulagi Helguvíkur, hafnar og iðnaðarsvæðis - skipulagsuppdráttur

6. Starfsmannamál Reykjaneshafnar (2025050171)

Á 304. fundi atvinnu- og hafnarráðs sem fram fór 22. janúar sl. var samþykkt að taka upp nýtt vinnufyrirkomulag hjá Reykjaneshöfn til reynslu, en aukið álag á starfsmönnum hafnarinnar með aukinni hafnarstarfsemi hefur kallað á endurskoðun á eldra fyrirkomulagi. Nýtt vinnufyrirkomulag kallar á að almennir starfsmenn hafnarinnar verði fjórir í stað þriggja og var því jafnframt samþykkt að ráða inn nýjan starfsmann tímabundið með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Unnið hefur verið eftir nýju fyrirkomulagi síðustu mánuði og er það mat starfsmanna sem og hafnarinnar að það sé til mikilla bóta, hvort sem það snýr að vinnuaðstæðum starfsmanna eða þjónustugetu hafnarinnar.

Atvinnu- og hafnarráð er sammála því mati að nýtt fyrirkomulag sé til bóta og samþykkir að það vinnufyrirkomulag verði til framtíðar. Jafnframt samþykkir atvinnu- og hafnarráð fastráðningu á tímabundnum starfsmanni frá því í febrúar sl.

7. Skemmtiferðaskip (2026020459)

Þrjú skemmtiferðaskip hafa komið til Keflavíkurhafnar það sem af er árinu og tvö eru væntanleg í september. Tvö skip afboðuðu komu sína í sumar, annað vegna breytingar á áætlun og hitt vegna veðurs. Farið var yfir hvernig til hefur tekist varðandi móttöku og þjónustu við viðkomandi skip.

Fylgigögn:

Metfjöldi skemmtiferðaskipa - frétt á vef Reykjanesbæjar

8. Hafnasambandsþing 2026 (2026080170)

Hafnasambandsþing verður haldið í Reykjanesbæ þann 22. og 23. október nk. á vegum Hafnasambands Íslands í boði Reykjaneshafnar í samstarfi við Grindarvíkurhöfn og Sandgerðishöfn. Farið var yfir stöðu mála vegna undirbúnings fyrir þingið.

9. K64 Hringrásariðngarður (2023100396)

Fundargerð faghóps um K64 Hringrásariðngarð frá 29. júní lögð fram.

Fylgigögn:

K64 Hringrásariðngarður

10. Reykjaneshöfn – merki hafnarinnar (2026080172)

Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Kynntar voru hugmyndir að merki fyrir Reykjaneshöfn.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að halda áfram vinnu að merki fyrir Reykjaneshöfn í samræmi við umræður á fundinum.

11. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2026020457)

Drög að erindisbréfi samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs lögð fram.

12. Ímynd og ásýnd Reykjaness (2026080173)

Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Niðurstöður úr vinnustofu Athygli ráðgjafar og Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, um ímynd, sérstöðu og sameiginlega framtíðarsýn Reykjaness frá 13. maí sl. lagðar fram.

13. Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - endurskoðun (2026070062)

Bæjarráð Reykjanesbæjar tók fyrir á fundi sínum þann 9. júlí sl. erindi frá innviðaráðuneytinu þar sem óskað var eftir svörum frá sveitarfélögum í tengslum við vinnu ráðuneytisins að stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga. Bæjarráð vísaði málinu til sviðsstjóra bæjarins og fól þeim að svara spurningum tengdum þeirra sviðum í samráði við viðkomandi ráð. Halldór K. Hermannsson sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs kynnti drög að svörum við spurningum sem tengjast atvinnu- og hafnarmálum.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög sem framlögð svör og vísar þeim til bæjarráðs.

Fylgigögn:

Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - póstur frá innviðaráðuneyti

14. Sólmyrkvi 12. ágúst 2026 (2025040174)

Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Miðvikudaginn 12. ágúst sl. var almyrkvi á sólu á vesturhluta Íslands. Af því tilefni stóð Reykjanesbær fyrir Myrkvastund á fjórum stöðum í Reykjanesbæ, viðburðum með tónlist, fræðslu og fjölbreyttri dagskrá.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinn með það hvernig til tókst með viðburðina Myrkvastund þann 12. ágúst sl. og þakkar jafnt sem hrósar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd þeirra.

Fylgigögn:

Sólmyrkvaævintýri í Reykjanesbæ - frétt á vef Víkurfrétta

15. Erindisbréf atvinnu- og hafnarráðs (2026060327)

Drög að erindisbréfi atvinnu- og hafnarráðs lagt fram til kynningar.

16. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs (2026050014)

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs fyrir fyrstu sex mánuði ársins.

17. Upplýsingagjöf sviðsstjóra (2026010379)

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:33. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 1. september 2026.