1046. fundur

29.10.2015 11:32

1046. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn 29. október 2015 að Tjarnargötu 12, kl. 09:00.

Mættir: Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson aðalmaður, Gunnar Þórarinsson aðalmaður, Árni Sigfússon aðalmaður, Böðvar Jónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jakobsson áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Ásbjörn Jónsson ritari.

1. Viðræður við kröfuhafa (2014080481)

Þórey I. Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, Ólafur Arinbjörn Sigurðsson hdl., Emil Viðar Eyþórsson og Runólfur Þór Sanders mættu á fundinn, Gerðu þau grein fyrir viðræðum við kröfuhafa.

2. Erindi Reykjaneshafnar vegna Lánasjóðs sveitarfélaga (2015100435)

Bæjarráð samþykkir að veita heimild til Reykjaneshafnar á láni kr. 62 mkr. hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að fjármagna afborganir lána hafnarinnar hjá lánasjóðnum.

3. Erindi frá Fjáreigendafélagi Grindavíkur (2015100401)

Erindinu hafnað.

4. Fjárhagsáætlun 2016 (2015080120)

Þórey I Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti á fundinn. 

5. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 21. október 2015 (2015010698)

Lagt fram.

6. Fundargerð Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja 22. október 2015 (2015020380)

Lagt fram.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið.

Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. nóvember nk.

2. mál frá 1046. fundi bæjarráðs 29. október 2015.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkir hér með að veita  einfalda ábyrgð vegna lántöku Reykjaneshafnar hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 60.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Ábyrgð þessi er veitt sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veitir sveitarstjórnin lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk  hvers kyns innheimtukostnaðar.  Lánið er tekið til endurfjármögnunar afborgana af lánum Reykjaneshafnar, sem fellur undir lánshæf verkefni,  sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Reykjaneshafnar til að selja ekki eignarhlut sinn í Reykjaneshöfn til einkaaðila, í heild eða að hluta, fram til þess tíma að lán þetta er að fullu greitt.
Fari svo að Reykjanesbær selji eignarhlut í Reykjaneshöfn til annarra opinberra aðila, skuldbindur Reykjanesbær sig til þess að tryggja að samhliða yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Kjartani Má Kjartanssyni, kennitala ekki birt, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að samþykkja f.h. Reykjanesbæjar veitingu ofangreindrar ábyrgðar og veðsetningar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu ábyrgðar þessarar.

Heimildin samþykkt 11-0

Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0 án umræðu.