1057. fundur

14.01.2016 11:59

1057. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn 14. janúar 2016 að Tjarnargötu 12, kl. 09:00.

Mættir: Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson aðalmaður, Gunnar Þórarinsson aðalmaður, Árni Sigfússon aðalmaður, Böðvar Jónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jakobsson áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri og Ásbjörn Jónsson, ritari.


1. Erindi Samgöngustofu v/umsóknar Bernhard ehf. um leyfi til að reka ökutækjaleigu að Njarðarbraut 15 (2016010179)

Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.


2. Dvalarheimili aldraðra Suðurnesjum - viðauki við skuldabréf (2014080058)

Bæjarráð samþykkir viðauka við skuldabréfið.


3. Málefni Bjargarinnar - geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja (2015070183)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga.


4. Starfsmannamál (2015110044)

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu..


5. Viðræður við kröfuhafa (2014080481)

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við kröfuhafa.


Fleira ekki gert og fundi slitið.

Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. janúar nk.