1092. fundur

29.09.2016 00:00

1092. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 29. september 2016 kl. 08:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Baldur Guðmundsson varamaður, Friðjón Einarsson formaður Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Kristinn Þór Jakobsson áheyrnarfulltrúi  og Ásbjörn Jónsson ritari.

1. Kostnaður vegna sérfræðiþjónustu 2016 (2016090166)
Þórey I Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti og fundinn og gerði grein fyrir málinu.

2. Rekstraruppgjör janúar til júlí 2016 (2016050406)
Þórey I Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti og fundinn og gerði grein fyrir málinu.

3. Erindi frá Félagi atvinnurekenda (2016090297)
Lagt fram.

4. Fundargerð stjórnar Öldungaráðs Suðurnesja 26. september 2016 (2016050179)
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerðir Fasteigna Reykjanesbæjar ehf. 15. júní og 14. september 2016 (2016010799)
Fundargerðirnar lagðar fram.

6. Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar Hólmars Tryggvasonar um leyfi til að reka gististað í flokki I að Mánagötu 7 (2016090298
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

7. Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar TF-HOT ehf. um breytingu á leyfi til að reka gististað í flokki V að Valhallarbraut 756 og 757 (2016090332)
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8. Málefni Thorsil (2016090334)
Fulltrúar Thorsils  mættu á fundinn og gerðu grein fyrir málefnum félagsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 4. október 2016.