1094. fundur

13.10.2016 00:00

1094. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 13.október 2016 kl. 09:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Böðvar Jónsson, Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Kristinn Þór Jakobsson áheyrnarfulltrúi og Ásbjörn Jónsson ritari.

1. Viðræður við kröfuhafa (2014080481)
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson lögmaður hjá Logos mætti á fundinn og  gerði grein fyrir málinu.

2. Fjárhagsáætlun 2016 (2015080120)
a. Viðaukaáætlun 2016.    Þórey I Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð samþykkir viðaukaáætlun 2016-1.
b. Útkomuspá 2016. Þórey I Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.  Útkomuspá 2016 lögð fram.
Oddur G. Jónsson frá KPMG mætti á fundinn og gerði grein fyrir drögum að aðlögunaráætlun. 

3. Fundargerð aðalfundar Öldungaráðs Suðurnesja 8. október 2016
Fundargerðin lögð fram.

4. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 14. og 15. október 2016 (2016100111)
Lagt fram.

5. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 5. október 2016 (2016020009)
Fundargerðin lögð fram.

6. Fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs ses. 10. október 2016 (2016050102)
Fundargerðin lögð fram.

7. Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar Lovely Thai Restaurant ehf. um leyfi til að reka veitingastað í flokki II að Hafnargötu 17 (2016100102)
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8. Hluthafafundur Keilis 18. október 2016 (2016100121)
Formaður bæjarráðs fer með atkvæði Reykjanesbæjar á hluthafafundinum.

9. Erindi frá Grími Karlssyni dags. 4. október 2016 (2016090212)
Bæjarráð vísar til svars menningarfulltrúa.

Fleira ekki gert og fundi slitið. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 18. október 2016.