1220. fundur

23.05.2019 08:00

1220. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 23. maí 2019 kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson, formaður, Guðbrandur Einarsson, Margrét A. Sanders, Gunnar Þórarinsson, Díana Hilmarsdóttir, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Samþykkt um gatnagerðargjöld (2019051830)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfissviðs og Regína F. Guðmundsdóttir fjármálastjóri mættu á fundinn og gerðu grein fyrir málinu.
Bæjarráð samþykkir nýja gjaldskrá um gatnagerðagjald í Reykjanesbæ.

Fylgigögn

Ný samþykkt um gatnagerðagjöld
Eldri samþykkt um gatnagerðagjöld

2. Drög að þriggja mánaða samstæðuuppgjöri (2019050497)

Regína F. Guðmundsdóttir fjármálastjóri gerði grein fyrir málinu. Lögð fram drög að þriggja mánaða samstæðuuppgjöri sem eru samkvæmt áætlun.

3. Aðild að rammasamning um raforku (2019051837)

Meirihlutinn samþykkir að taka þátt í útboði Ríkiskaupa á raforkukaupum. Margrét A. Sanders Sjálfstæðisflokki og Gunnar Þórarinsson Frjálsu afli sátu hjá.

Fylgigögn

Aðild að RS Raforku

4. Atvinnu- og þróunarsvæði á Miðnesheiði – kostnaðarskipting (2019050820)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í verkefninu.

Fylgigögn

Atvinnu- og þróunarsvæði á Miðnesheiði - kostnaðarskipting

5. Helmingshlutur HSV Eignarhaldsfélags til sölu (2019051841)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

6. Slit á vinarbæjarsamstarfi (2019051740)

Lagt fram bréf frá Kristiansand um slit á vinabæjarsamstarfi. Bæjarstjóra falið að ræða við sveitarfélögin Kerava og Trollhättan um áframhald samstarfsins.

Fylgigögn

Nordic Twin City Cooperation 

7. Erindi vegna Vatnsneshús (2019051800)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

8. Erindi frá Unicef (2019051828)

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið. Bæjarstjóra falið að vinna áfram í málinu.

Fylgigögn 

Erindi Unicef

9. Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda (2019051839)

Bæjarráð samþykkir styrkveitingu á móti fasteignaskatti 2019 til handa Rauða krossinum á Suðurnesjum vegna Smiðjuvalla 8, að fjárhæð kr. 607.405.-

10. Fundargerð sögunefndar Keflavíkur 13. maí 2019 (2019050831)

Fundargerðin lögð fram.

Fylgigögn

Sögunefnd Keflavíkur 2. fundur 13.5.2019

11. Fundargerð 503. fundar Kölku sorpeyðingarstöðvar 15. maí 2019 (2019050804)

Fundargerðin lögð fram.

Fylgigögn

Fundargerð 503. fundar Kölku

12. Fundargerð Aðalfundar Kölku sorpeyðingarstöðvar 9. maí 2019 (2019050772)

Fundargerðin lögð fram.

Fylgigögn 

Fundargerð aðalfundar 2019

13. Umsagnarmál frá nefndarsviði Alþingis (2019050801)

a. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (hækkun lífeyris) 844. mál. https://www.althingi.is/altext/149/s/1345.html
b. Tillaga til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa aldraðra, 825. mál. https://www.althingi.is/altext/149/s/1303.html
c. Tillaga til þingsályktunar um stöðu barna 10 árum eftir hrun, 256. mál. https://www.althingi.is/altext/149/s/0274.html
d. Til umsagnar frumvarp til laga um matvæli (sýklalyfjanotkun), 753. mál. https://www.althingi.is/altext/149/s/1189.html
Umsagnarmál lögð fram.

Fylgiskjöl

Umsagnarmál 844 - https://www.althingi.is/altext/149/s/1345.html 
Umsagnarmál 825 - https://www.althingi.is/altext/149/s/1303.html
Umsagnarmál 256 - https://www.althingi.is/altext/149/s/0274.html
Umsagnarmál 753 - https://www.althingi.is/altext/149/s/1189.html 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9.50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 4. júní 2019.