1236. fundur

19.09.2019 08:00

1236. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 19. september 2019 kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét Ólöf A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Höskuldsdóttir ritari.

1. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 3. - 4. október 2019 (2019090406)

Lagt fram til kynningar og bæjarfulltrúar hvattir til að mæta á fundinn.

Fylgigögn:

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2019

2. Brunavarnir Suðurnesja – Hringbraut 125 (2019060175)

Kaupsamningur samþykktur og bæjarstjóra falið að ganga frá málinu.

Fylgigögn:

Samningur

3. Erindi til bæjarráðs vegna heiðursborgara (2019090434)

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu. Málinu frestað.

4. Gjaldskrá HS veitna (2019090441)

Formaður fór yfir stöðuna.

5.  Fundargerðir stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs. 27. ágúst og 12. september 2019 (2019051062)

Lagt fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 42. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs. 27. águst 2019

Fundargerð 43. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs. 12. september 2019

6. Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 10. september 2019 (2019050804)

Lagt fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 506. fundar Kölku

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9.20. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 1. október 2019.