1251. fundur

09.01.2020 08:00

1251. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Tjarnargötu 12 9. janúar 2020, kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Díana Hilmarsdóttir, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.


1. 3. mál úr fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 18. desember 2019 (2020010054)

Magnús Jóhannesson fjármálastjóri Keilis, Jóhann Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Keilis og Brynjólfur Ægir Sævarsson ráðgjafi mættu á fundinn og gerðu grein fyrir málinu.

2. Kynning á samstarfssamningum við UMFN og Keflavík (2019110206)

Hafþór B.Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi mætti á fundinn og fór yfir samstarfssamning Reykjanesbæjar við íþrótta- og ungmennafélög í Reykjanesbæ.

3. Skipan í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks (2019120096)

Bæjarráð skipar eftirfarandi í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks:
Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D), Halldór Rósmundur Guðjónsson (Y) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S).

4. Samskipti við Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga (2020010062)

Meirihluti bæjarráðs lagði fram eftirfarandi bókun:
„Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur tilkynnt Reykjanesbæ að við yfirferð nefndarinnar á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir tímabilið 2020-2023 sé ekki annað að sjá en að sveitarfélagið uppfylli þegar fjárhagsleg viðmið 64. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og áformi á tímabili fjárhagsáætlunarinnar að viðmiðin verði uppfyllt áfram. Þetta kemur fram í bréfi sem nefndin hefur sent Reykjanesbæ.
Með þessu sé aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar fallin úr gildi og bæjarstjórn ekki lengur skylt að bera undir eftirlitsnefndina óskir um breytingar á aðlögunaráætlun heldur starfi sveitarfélagið nú eftir almennum ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Þetta þýðir að nú er bæjaryfirvöldum frjálst að stýra fjármálum sveitarfélagins án sérstaks samráðs við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga svo fremi sem áætlanir standist og viðmið og ákvæði í fjármálareglum sveitarstjórnarlag verði áfram uppfyllt.
Fyrir Reykjanesbæ eru þetta sérstaklega ánægjuleg tíðindi sem stefnt hefur verið að í langan tíma eða allt frá því að aðgerðaráætlunin „Sóknin“ var sett af stað í árslok 2014. Sóknin samanstóð af margvíslegum aðgerðum í rekstri og gerði ráð fyrir að þessu markmiði yrði náð í árslok 2022 . Styrk fjármálastjórn, skynsamlegar aðhaldsaðgerðir og hagstæðar ytri aðstæður, m.a. aukin flugumferð um Keflavíkurflugvöll, hátt atvinnustig og fjölgun íbúa, sem leitt hafa til tekjuaukningar bæjarsjóðs, hafa gert það að verkum að markmiðið næst tveimur árum fyrr en áætlað var.
Bæjarstjórn mun nú í framhaldinu leggjast yfir framtíðaráætlanir bæjarfélagsins, en fjölmörg stór verkefni eru á teikniborðinu í uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja, ýmissa fjárfestinga og framkvæmda. Það er því bjartara framundan fyrir íbúa Reykjanesbæjar sem hafa mátt þola hærri álögur undanfarin ár vegna erfiðrar stöðu bæjarins.
Um leið og bæjaryfirvöld fagna þessum merka áfanga eru íbúum og starfsmönnum Reykjanesbæjar færðar bestu þakkir fyrir gott samstarf sem nú hefur skilað góðum árangri.“
Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y), Díana Hilmarsdóttir (B)

Fylgigögn:

Bréf frá Eftirlitsnefnd sveitarfélaga

Bæjarráð samþykkir að taka inn eftirfarandi mál á dagskrá:

5. Almenningssamgöngur í Reykjanesbæ (2019090564)

Guðlaugur Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfissviðs og Sigurður Ingi Kristófersson deildarstjóri umhverfismála mættu á fundinn og gerðu grein fyrir málinu.

6. Staðfesting vegna breytinga á svæðisskipulagi Suðurnesja (2019070283)

Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 og vísar tillögunni til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar 21. janúar 2020.

7. Kaupsamningur um fasteignir (2020010099)

Regína F. Guðmundsdóttir fjármálastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. janúar 2020.