1255. fundur

06.02.2020 08:00

1255. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Tjarnargötu 12, 6. febrúar 2020, kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Höskuldsdóttir ritari.

1. Erindi vegna Víkingabrautar (2019120029)

Björn Jónasson og Elísabet Gunnlaugsdóttir frá Víkingaheimum ehf. mættu á fundinn og kynntu framtíðaráform Víkingaheima. Bæjarstjóra er falið að vinna áfram í málinu.

2. Húsnæði Keilis - áreiðanleikakönnun (2020010054)

Guðmundur Kjartansson ráðgjafi mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.

3. Jarðhræringar á Reykjanesi (2020010469)

Á fundinn mættu Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur, Tómas M. Sigurðsson, Yngvi Guðmundsson, Finnur Beck frá HS Orku, Egill Sigmundsson, Júlíus Jónsson frá HS Veitum, Jón Guðlaugsson slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri Almannavarna Suðurnesja utan Grindavíkur, Gunnar Schram frá lögreglunni í Keflavík, Friðjón Pálmarsson, Ágúst Gunnar Eyjólfsson frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.

Kynntar voru þær áætlanir sem fyrir liggja.

4. Endurfjármögnun EFF (2019060364)

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

5. Nýtt hjúkrunarheimili (2019050812)

Bæjarráð lýsir ánægju með að samningsgerð um nýtt hjúkrunarheimili sé lokið og samþykkir fyrirliggjandi samning. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Reykjanesbæjar.

6. Velferðarsvið (2020021011)

Bæjarráð samþykkir að gerð verði úttekt á starfsemi og starfsumhverfi Velferðarsviðs, sérstaklega með m.t.t. nýlegrar álagsmælingar hjá starfsmönnum sviðsins. Stefnt skuli að því að niðurstöður úttektar verði kynntar bæjarráði á vormánuðum. Bæjarstjóra er falið að vinna áfram að málinu.

7. Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts – endurskoðun (2020021008)

Lagt fram.

Fylgigögn:

Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts

8. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 30. janúar 2020 (2020010516)

Fundargerðin lögð fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 281 fundar heilbrigðisnefndar Suðurnesja

9. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2020010375)

a. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 35/1970, um Kristnisjóð o.fl., með síðari breytingum (ókeypis lóðir), 50. mál
https://www.althingi.is/altext/150/s/0050.html

b. Tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 64. mál
https://www.althingi.is/altext/150/s/0064.html

Umsagnarmál lögð fram.

Fylgigögn:

Frá nefndasviði Alþingis 50. mál
Frá nefndasviði Alþingis 64. mál


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 18. febrúar 2020.