1258. fundur

27.02.2020 08:00

1258. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 27. febrúar 2020 kl. 08:00

Viðstaddir: Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Niðurstöður atkvæðagreiðslu félagsmanna Starfsmannafélags Suðurnesja um verkföll (2020021492)

Lagt fram.

2. Beiðni um færslu milli deilda í fjárhagsáætlun 2020 (2020021547)

Bæjarráð samþykkir beiðni um færslu á fjárhagsáætlun milli deilda innan Súlunnar verkefnastofu, af lykli 05-020 yfir á lykil 21-417.

3. Vestnorden 2020 – tillaga að kostnaðaráætlun (2019080689)

Bæjarráð samþykkir framlag kr. 5.000.000 sem verður tekið af lykli 21-010.

4. Rammasamningur um raforku - niðurstaða örútboðs (2019051837)

Reykjanesbæ hefur borist tillaga að vali á bjóðanda í örútboði nr. 21075 RS raforka sveitarfélög.

Reykjanesbær hefur ákveðið að fara að tillögu Ríkiskaupa og mun tilkynning um val tilboðs verða send bjóðendum í útboðskerfinu. Tilkynnt verður um töku tilboðs þegar biðtíma er lokið, ef engin kæra berst til kærunefndar útboðsmála. Við töku tilboða er komið á samningssamband milli kaupanda og seljanda.

Margrét A. Sanders (D) situr hjá.

5. Sameiginleg atvinnustefna fyrir Suðurnes (2020021465)

Bæjarráð samþykkir að taka þátt í að samræma atvinnustefnu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og vísar málinu til og menningar- og atvinnuráðs.

Fylgigögn:

Sameiginleg atvinnustefna fyrir Suðurnes - erindi frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum

6. Erindi frá félagi húsbílaeigenda (2020021423)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

7. Fjárfestingarverkefnið The Green Mill Project – beiðni um umsögn vegna umsóknar um ívilnun (2020021438)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

8. Barnvæn sveitarfélög - innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (2020021548)

Borist hefur erindi frá UNICEF um þátttöku Reykjanesbæjar í verkefninu „Barnvæn sveitarfélög“. Bæjarráð samþykkir að taka þátt sem felur í sér innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Fylgigögn:

Barnvæn sveitarfélög - erindi frá Félagsmálaráðuneytinu og Unicef á Íslandi

9. Fundargerð skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja 29. janúar 2020 (2020021488)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 352. fundar skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja

10. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 12. febrúar 2020 (2020021539)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs

11. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 19. febrúar 2020 (2020010217)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 753. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

12. Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar Hótels Keilis ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki IV að Hafnargötu 37 – 37a (2020010484)

Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og tölvupóstur frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir erindið.

13. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2020010375)

a. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum (réttur til einbýlis á öldrunarstofnunum), 323. mál
https://www.althingi.is/altext/150/s/0366.html

Fylgigögn:

Með því að smella hér opnast frumvarpið

b. Tillaga til þingsályktunar um stöðu barna tíu árum eftir hrun, 191. mál
https://www.althingi.is/altext/150/s/0195.html

Umsagnarmál lögð fram.

Fylgigögn:

Með því að smella hér opnast tillagan

14. Umsagnarmál í samráðsgátt (2020021308)

a. Reglugerð um héraðsskjalasöfn, mál nr. 32/2020
https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=2621

Fylgigögn:

Með því að smella hér má skoða reglugerðina í samráðsgáttinni

b. Eignarráð og nýting fasteigna - tillaga Sambands íslenskra sveitarfélaga að umsögn
https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=2623

Umsagnarmál lögð fram.

Fylgigögn:

Með því að smella hér má skoða frumvarpið í samráðsgáttinni


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:10. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. mars 2020.