1279. fundur

30.07.2020 08:00

1279. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Tjarnargötu 12, 30. júlí 2020, kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Baldur Þ. Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét A. Sanders, Gunnar Felix Rúnarsson áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Höskuldsdóttir ritari.

1. Hafnarmannvirki Reykjaneshafnar (2020030194)

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar skipaþjónustuklasa við Njarðvíkurhöfn. Drögin samþykkt.

2. Almenningssamgöngur í Reykjanesbæ (2019090564)

Formaður bæjarráðs fór yfir málið. Fyrsti fundur stýrihóps verður um miðjan ágúst.

3. Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar Gistivers ehf. (Hótel Berg) um leyfi til að reka gististað í flokki IV að Bakkavegi 17 (2020030184)

Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir erindið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8.35