1291. fundur

22.10.2020 08:00

1291. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn 22. október 2020, kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Baldur Þ. Guðmundsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Guðbrandur Einarsson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Stytting vinnuvikunnar (2019100323)

Kristinn Óskarsson, mannauðsstjóri og Iðunn Kristín Grétarsdóttir, deildarstjóri launadeildar, mættu á fundinn og kynntu verkefnið „Stytting vinnuvikunnar“.

2. Fjárhagsáætlun 2021-2024 (2020060158)

Lagt fram bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi frest til að leggja fram og afgreiða fjárhagsáætlanir. Bæjarráð samþykkir að sækja um frest og felur bæjarstjóra að sækja um.

Fylgigögn:

Frestir vegna fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2021

3. Ályktun aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (2019120281)

Lagt fram.

Fylgigögn:

Ályktun 44. aðalfundar SSS

4. Umsögn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum um fjárlög 2021 (2020100206)

Lögð fram umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Bæjarráð lýsir yfir ánægju með þessa umsögn.

Fylgigögn:

Umsögn um fjárlög 2021 1.mál Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

5. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 18. desember 2020 (2020010316)

Fjarfundarboð lagt fram.

Fylgigögn:

Boðun landsþings XXXV - des 2020

6. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 5. nóvember 2020 (2020100184)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

Dagskrá aðalfundar 2020
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 42

7. Fundargerð samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara 24. september 2020 (2020100207)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

117. fundur sns og fl 24. september 2020

8. Fundargerð aðalfundar Tjarnargötu 12 ehf. 15. október 2020 (2020100074)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

Aðalfundur T12 2020 undirr.

9. Fundargerðir neyðarstjórnar (2020030192)

Með því að smella hér opnast fundargerðir neyðarstjórnar.

10. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2020010375)

a. Frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, 14. mál
Með því að smella hér opnast frumvarpið. 
b. Frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála, 15. mál
Með því að smella hér opnast frumvarpið. 
c. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði (breytt kynskráning), 21. mál
Með því að smella hér opnast frumvarpið. 
d. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000 (jöfnun atkvæðavægis), 27. mál
Með því að smella hér opnast frumvarpið. 
e. Tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 85. mál
Með því að smella hér opnast frumvarpið.

Umsagnarmál lögð fram.

11. Byggingarnefnd Stapaskóla (2019110200)

Fundargerð verkefnastjórnar lögð fram.

Tillaga lögð fram í Byggingarnefnd Stapaskóla fimmtudaginn 22. október 2020.
„Byggingarnefnd Stapaskóla samþykkir að ráðist verði nú þegar í frumhönnun á íþróttaaðstöðu við Stapaskóla – áfanga 2. Unnið verði skv. tillögu A sem var að finna í minnisblaði sem lagt var fram í byggingarnefnd 15. október sl. en þar er gert ráð fyrir fullbúnu íþróttahúsi með aðstöðu fyrir áhorfendur og 25 metra sundlaug með heitum pottum.
Í minnisblaði er lögð áhersla á að horfa til þessarar byggingar sem hjarta hverfisins sem er í hraðri uppbyggingu og miðstöð fyrir breiðan aldurshóp. Þar verði lögð áhersla á að skapa góða aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir unga sem aldna. Tenging verði við almenningsbókasafn og skólann þar sem jákvætt og heilbrigt samfélag blómstrar.
Samfara frumhönnun fari fram greining á íbúaþróun ásamt kostnaðargreiningu sem svarað verði samhliða.“

Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y) og Jóhann Friðrik Friðriksson (B) samþykkja tillöguna. Margrét A. Sanders (D) og Baldur Þ. Guðmundsson (D) greiða atkvæði á móti og áheyrnarfulltrúi Margrét Þórarinsdóttir (M) lýsti sig andvíga tillögunni og vísaði jafnframt í bókun minnihlutans frá síðasta bæjarstjórnarfundi 20. október 2020.

12. Stjórnarfundur Tjarnargötu 12 ehf. (2020050496)

Pálmar Guðmundsson kom inn á fundinn.

Tekið var fyrir sölutilboð sem barst vegna Njarðarbrautar 20. Bæjarráð frestar málinu.

Fylgigögn:

Stjórnarfundur T12

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:45. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. nóvember 2020.