1312. fundur

25.03.2021 08:00

1312. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn þann 25. mars 2021 kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Baldur Þ. Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson, Margrét Sanders, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Íris Andrea Guðmundsdóttir ritari.

1. Atvinnumál (2021030003)

Sigurgestur Guðlaugsson verkefnastjóri atvinnu- og viðskiptaþróunar og Þórdís Ósk Helgadóttir forstöðumaður Súlunnar mættu á fundinn og fóru yfir vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar þ.á.m. ‘‘Hefjum störf‘‘ sem er nýtt úrræði.

2. Almenningssamgöngur í Reykjanesbæ (2019090564)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfissviðs og Gunnar Ellert Geirsson deildarstjóri umhverfissviðs mættu á fundinn og fóru yfir notkun á strætó.

3. Aðgangseyrir í menningarhús 2021 (2020120191)

Lögð fram tillaga menningar- og atvinnuráðs frá fundi 17. mars sl. þess efnis að enginn aðgangseyrir verði að söfnum Reykjanesbæjar til 1. september 2021.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

4. Flugvellir nr. 5, 7, 9, 13, 15, 17 - afturköllun lóða (2020120119)

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög.

5. Íþróttahreyfingin og Covid 19 (2020040039)

Bæjarráð samþykkir að styrkja Keflavík íþrótta- og ungmennafélag um kr. 10.000.000.- á grundvelli erindis sem barst frá félaginu. Ársreikningur félagsins vegna 2020 leiðir í ljós að félagið skilar neikvæðri afkomu upp á 5,3 milljónir króna. Fimleikadeildin skilaði neikvæðri afkomu upp á kr. 7.000.000.- og því nauðsynlegt að bregðast við. Ráðið beinir því til aðalstjórnar að styrkurinn verði nýttur þar sem þörfin er mest innan félagsins. Beðið er eftir erindi frá aðalstjórn UMFN. Tekið af bókhaldslykli 21-011.

6. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 12. mars 2021 (2021020698)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

Fundargerð 45. fundar stjórnar Samtaka orkusveitafélaga

7. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 17. mars 2021 (2021010463)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

767. stjórnarfundur S.S.S.

8. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs. 17. mars 2021 (2021030130)

Fundargerð lögð fram. Bæjarráð vísar öðru máli úr fundargerð til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgigögn:

Fundargerð 55. stjórnarfundar 

9. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2021010117)

a. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísanir, dvalar- og atvinnuleyfi), 602. mál

Með því að smella hér opnast frumvarpið

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 6. apríl 2021.