1355. fundur

27.01.2022 08:00

1355. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn 27. janúar 2022, kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Baldur Þ. Guðmundsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Fuglavík 45 – gatnagerðargjöld (2021100510)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfissviðs mætti á fundinn.

Erindi barst frá Herlegheitum ehf. um frestun á eftirstöðvum gatnagerðargjalda fyrir lóðina Fuglavík 45, 230 Reykjanesbæ.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fyrirkomulag á greiðslu á eftirstöðvum gatnagerðargjalda.

2. Erindi stjórna körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur (2022010445)

Erindi barst frá körfuknattleiksdeildum Keflavíkur og Njarðvíkur um aukið framlag til barna- og unglingaráða félaganna beggja, kr. 3.000.000 á hvort lið og aukið framlag til körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur, kr. 8.000.000 á hvort lið.

Bæjarráð samþykkir að styrkja aðalstjórn Keflavíkur um kr. 7.500.000 og aðalstjórn Njarðvíkur um kr. 7.500.000 vegna Covid sem sérstaklega er ætlað körfuknattleiksdeildum félaganna, tekið af bókhaldslykli 21011-9220. Formanni bæjarráðs falið að afla frekari gagna.

Fylgigögn:

Erindi frá KKDN og KKDK

3. Uppbyggingarteymi félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19 (2020040083)

Lögð fram stöðuskýrsla frá félagsmálaráðuneytinu um stöðu velferðarþjónustu í heimsfaraldri.

4. Fundargerð Svæðisskipulags Suðurnesja 13. janúar 2022 (2022010404)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

27. fundur Svæðisskipulags Suðurnesja 13.01.2022

5. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 19. janúar 2022 (2022010469)

Fundargerð lögð fram.

Fylgigögn:

775. fundur stjórnar SSS 19012022

6. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2022010436)

a. Frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 181. mál - allsherjar- og menntamálanefnd
Með því að smella hér opnast frumvarpið.
b. Frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2, 11. mál – umhverfis- og samgöngunefnd
Með því að smella hér opnast frumvarpið.

Umsagnarmál lögð fram.

7. Lóðir í Helguvík (2022010439)

Umræður um nýtingu og atvinnuuppbyggingu í Helguvík.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.00. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 1. febrúar 2022.