1404. fundur

02.02.2023 08:15

1404. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn í Merkinesi, Hljómahöll 2. febrúar 2023, kl. 08:15

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Margrét A. Sanders og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Almenningssamgöngur – pöntunarþjónusta (2022050529)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Gunnar E. Geirsson deildarstjóri umhverfismála og Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi mættu á fundinn. Farið yfir stöðu tilraunaverkefnisins um pöntunarþjónustu í almenningsþjónustu. Lagt fram minnisblað um stöðu verkefnisins.

Bæjarráð samþykkir að halda verkefninu áfram.

Fylgigögn:

Erindi til bæjarráðs 28-01-2023

2. Úttekt á umhverfis- og framkvæmdasviði (2023010375)

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að gera drög að aðgerðaáætlun út frá tillögum sem Róbert Ragnarsson KPMG lagði fram á fundi bæjarráðs 19. janúar sl.

3. Erindi til bæjarráðs frá Kvennakór Suðurnesja (2023010685)

Lögð fram beiðni um neyðarstyrk að vegna Covid-19. Einnig er óskað eftir aðstoð sveitarfélagsins að finna aðstöðu fyrir kórinn.

Bæjarráð vísar beiðni um neyðarstyrk til menningar- og atvinnuráðs. Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu varðandi beiðni um aðstöðu fyrir kórinn.

4. Húsnæði Myllubakkaskóla (2021050174)

Lögð fram til kynningar fundargerð verkefnastjórnar Myllubakkaskóla.

5. Rakaskemmdir í stofnunum (2022100267)

Lögð fram til kynningar fundargerð bygginganefndar.

Fylgigögn:

Fundargerð 11. fundar byggingarnefndar 26. janúar 2023

6. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 31. mars 2023 (2023010629)

Boðun á 38. landsþing sambandsins.

Fylgigögn:

Boðun XXXVIII. landsþings sambandsins

7. Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 5. janúar og 12. janúar 2023 (2023010630)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir svæðiskipulagsnefndar Suðurnesja.

Fylgigögn:

33. Fundur Svæðisskipulags Suðurnesja_05012023
34. Fundur Svæðisskipulags Suðurnesja_12012023

8. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 26. janúar 2023 (2023010659)

Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.

Fylgigögn:

298. fundur HES 26.01.2023

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:40. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. febrúar 2023.