1438. fundur

12.10.2023 08:15

1438. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12 12. október 2023, kl. 08:15

Viðstaddir:
Friðjón Einarsson formaður, Bjarni Páll Tryggvason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Margrét A. Sanders og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Reglur um félagsþjónustu (2022010182)

Ólafur Garðar Rósinkarsson, teymisstjóri í málefnum fatlaðs fólks, sat fundinn undir þessu máli.

Lagt fram minnisblað um endurskoðun reglna um akstursþjónustu fatlaðs fólks og reglna um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

Bæjarráð samþykkir drög að reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks og reglum um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

2. Þjónustusamningur við Kölku (2021110335)

Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi sátu fundinn undir þessu máli.

Lagt fram erindi um gerð þjónustusamnings Reykjanesbæjar við Kölku sorpeyðingarstöð sf.

Bæjarráð felur Guðlaugi H. Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og Önnu Karen Sigurjónsdóttur sjálfbærnifulltrúa að vinna áfram í málinu.

Fylgigögn:

Þjónustusamningur við Kölku

3. Almenningssamgöngur í Reykjanesbæ (2019090564)

Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessu máli.

Lagt fram erindi um að bæta tímabundið við aukavagni á leið R3, kostnaður er kr. 7.000.000 á mánuði.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til viðauka í fjárhagsáætlun 2023.

4. Stapaskóli 3. áfangi - leikskóli (2023030282)

Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessu máli.

Lagt fram minnisblað með tillögum vegna leikskólahluta áfanga Stapaskóli III.

Bæjarráð felur Guðlaugi H. Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu.

5. Fundargerð verkefnastjórnar Stapaskóla 20. september 2023 (2019110200)

Lögð fram til kynningar fundargerð verkefnastjórnar Stapaskóla.

6. Uppbygging námsmannaíbúða (2023090499)

Lagt fram erindi Byggingafélags námsmanna um lóðir og samstarf námsmannaíbúða.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

Fylgigögn:

Ósk um lóðir og samstarf um uppbyggingu námsmannaíbúða

7. Húsnæðisáætlun Reykjanesbæjar - endurskoðun (2023100145)

Lagt fram bréf frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um endurskoðun húsnæðisáætlunar.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra, Gunnari K. Ottóssyni skipulagsfulltrúa, Pálmari Guðmundssyni framkvæmdastjóra Fasteigna Reykjanesbæjar og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur fulltrúa bæjarstjórnar að vinna að endurskoðun húsnæðisáætlunar Reykjanesbæjar 2024.

8. Breiðbraut 643 - kauptilboð (2023090507)

Lögð fram kauptilboð sem hafa borist í Breiðbraut 643.

Málinu frestað.

9. Þróunarreitir - kaup á landi og sala byggingarréttar (2023070141)

Lagt fram mat á landi ríkissjóðs í Reykjanesbæ unnið af VSÓ fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

10. Tækifærisleyfi - Kristján Pétur Ásmundsson f.h. Fjölbrautaskóla Suðurnesja (2023100148)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

11. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 29. september 2023 (2023010560)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fylgigögn:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 934

12. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 9. október 2023 (2023010659)

Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.

Fylgigögn:

304. fundur HES 09.10.2023

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. október 2023.