1440. fundur

26.10.2023 08:15

1440. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12 26. október 2023, kl. 08:15

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Bjarni Páll Tryggvason, Díana Hilmarsdóttir, Margrét A. Sanders og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir boðaði forföll, Díana Hilmarsdóttir sat fyrir hana.

1. Húsnæði Keilis - Grænásbraut 910 (2023030333)

Lögð fram ástandsúttekt á húsnæði Keilis, skólahúsnæði á Ásbrú.

2. Betri vinnutími - grunnskólar (2023100249)

Lagðar fram til kynningar tillögur að framkvæmd vinnutímastyttingar í grunnskólum Reykjanesbæjar.

3. Seylubraut 1 og Flugvallabraut 710 (2022030093)

Málinu frestað.

4. Yfirlýsing vegna eignarhalds á lóðum (2023100383)

Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður mætti á fundinn.

Lögð fram yfirlýsing um eignarhald á skráðum lóðum Félags landeigenda Ytri-Njarðvíkurhverfis með Vatnsnesi sf.

Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir því við Félag landeigenda Ytri-Njarðvíkurhverfis með Vatnsnesi að hnitsettur uppdráttur fylgi með yfirlýsingu þessari svo unnt sé að fallast á hana.

5. Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs 2024 (2023100382)

Lögð fram kostnaðartillaga vegna samstarfs sveitarfélaga í stafrænni þróun og umbreytingu ársins 2024.

Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2024.

6. Styrkbeiðni frá Aflinu (2023100376)

Lögð fram styrkbeiðni frá Aflinu, samtökum fyrir þolendur ofbeldis, kr. 200.000.

Bæjarráð hafnar erindinu.

Fylgigögn:

Erindi til Reykjanesbæjar

7. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 16. október 2023 (2023010560)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fylgigögn:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 935

8. Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 17. október 2023 (2023010355)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf.

Fylgigögn:

Fundargerð nr. 551 - 17. október 2023

9. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 19. október 2023 (2023010469)

Lögð fram til kynningar fundargerð Brunavarna Suðurnesja bs.

Fylgigögn:

Fundargerð 76. stjórnarfundar 19. október 2023

10. Fundargerð stjórnar Eignasjóðs 19. október 2023 (2023080175)

Lögð fram til kynningar fundargerð Eignasjóðs Reykjanesbæjar.

Fylgigögn:

Fundargerð 3. fundar stjórnar Eignasjóðs 19. október 2023

11. Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga (2023100436)

Lagt fram til kynningar.

Með því að smella hér opnast leiðbeiningar fyrir íbúakosningar sveitarfélaga.

12. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2023020682)

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna tímabundinna undanþágna frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi:

Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum.

Lögð fram umsögn vegna 314. máls umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.

Bæjarráð tekur undir framlagða umsögn Sveins Björnssonar byggingarfulltrúa og Gunnars Kr. Ottóssonar skipulagsfulltrúa. Afrit af umsögn send til allra þingmanna kjördæmisins.

Fylgigögn:

Umsögn um breytingar á ýmsum lögum vegna tímabundinna undaþága frá skipulags- og byggingarlöggjöf


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. nóvember 2023.