1519. fundur

05.06.2025 08:15

1519. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Grænásbraut 910, 5. júní 2025, kl. 08:15

Viðstaddir: Bjarni Páll Tryggvason, Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Margrét A. Sanders og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Valkostagreining vegna sameiningar sveitarfélaga (2023090620)

Lögð fram til upplýsinga bókun sveitarfélagsins Voga.

Fylgigögn:

Valkostagreining vegna sameiningar sveitarfélaga

2. Mælaborð janúar-mars 2025 (2025060044)

Lögð fram til kynningar mælaborð janúar til mars 2025.

3. Umsögn um geymslustað ökutækja í útleigu - Now car Rental ehf., Bogatröð 1 (2025050527)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

4. Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 8. maí 2025 (2025020452)

Lögð fram til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.

Fylgigögn:

53. fundur Svæðisskipulags Suðurnesja 08.05.2024

5. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 27. maí 2025 (2025020043)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fylgigögn:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 980


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:56. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 16. júní 2025.