1549. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 29. janúar 2026, kl. 08:15
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Bjarni Páll Tryggvason boðaði forföll, Díana Hilmarsdóttir sat fyrir hann.
Margrét A. Sanders boðaði forföll, Guðbergur Reynisson sat fyrir hana.
1. Hátæknibrennslustöð - staða málsins (2026010544)
Steinþór Þórðarson framkvæmdastjóri Kölku og Önundur Jónasson stjórnarformaður og Eiður Ævarsson fulltrúar Reykjanesbæjar í stjórn Kölku mættu á fundinn.
Stýrihópar sem hafa kannað fýsileika á uppbyggingu hátæknibrennslustöðvar á Íslandi, hafa samanstaðið af fulltrúum frá SORPU, Kölku, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafa þegar gert með sér samning um stuðning við uppbyggingu hátæknibrennslustöðvar á Íslandi, en engin ákvörðun hefur verið tekin um staðsetningu á fyrirhugaðri stöð.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Kölku fyrir kynningu á stöðu verkefnisins en áréttar að engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort hátæknibrennslustöð verði byggð í Reykjanesbæ. Slík ákvörðun þarf að byggja á samráði og gagnsæi ásamt könnun á vilja sveitarfélagsins til þátttöku í slíku verkefni.
2. Fjárfestingaverkefni 2025 – staða framkvæmda og kostnaðar (2024090522)
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn.
Lögð fram samantekt fjármála í fjárfestingaverkefnum.
Meirihluti bæjarráðs þakkar fyrir samantektina sem sýnir svo ekki verður um villst að vel er haldið utan um það fjármagn sem fer í framkvæmdir í Reykjanesbæ. Lykiltölur framkvæmda sýna að uppreiknaður heildarkostnaður á hvern fermetra er vel undir samanburðarviðmiðum bæði í leik- og grunnskólum. Þau frávik sem koma fram snúa að framkvæmdum þar sem enn er óvíst með uppgjör vegna samninga og/eða málaferla. Sem dæmi má nefna að lengi hefur því verið haldið fram að Stapaskóli sé dýrasti grunnskóli landsins en hér sést svart á hvítu að það er rangt þar sem uppreiknað fermetraverð er um 860 þúsund krónur sem er í samræmi við viðmið Lánasjóðs sveitarfélaga. Það er því ljóst að Reykjanesbær hefur gætt aðhalds þegar kemur að byggingu skólans og kostnaðaráætlanir eru innan vikmarka. Það hefur verið gert á sama tíma og aðstaða og aðbúnaður innan skólans er til fyrirmyndar bæði fyrir nemendur og starfsfólk. Það er því ekki skrýtið að önnur sveitarfélög líti til Reykjanesbæjar sem jákvæðrar fyrirmyndar.
Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi tekur undir bókun meirihluta bæjarráðs.
3. Atvinnustefna fyrir Suðurnes (2026010374)
Lögð fram bókun atvinnu- og hafnarráðs frá 22. janúar 2026.
Bæjarráð leggur til að boðað verði til samtals á milli starfsfólks sem fer með atvinnumál í sveitarfélögum á Suðurnesjum og framkvæmdastjóra SSS og felur Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur formanni bæjarráðs að vinna áfram í málinu.
4. Fjölbrautaskóli Suðurnesja - umsókn um tækifærisleyfi (2026010413)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
5. Jón Skúli Jónsson - umsókn um tækifærisleyfi (2026010461)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
6. Umsögn vegna rekstrarleyfis - Gulldreki ehf., Hafnargata 90 (2025120101)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um leyfi til að reka veitingastað í flokki II-A. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.
7. Umsögn vegna rekstrarleyfis - Pólskur matur ehf., Hringbraut 92 (2025110485)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um leyfi til að reka veitingastað í flokki II-A. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.
8. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010453)
Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030, 322. mál
Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga, mál nr. 15/2026
Umsagnarmál lögð fram.
Bæjarráð felur Guðlaugi Helga Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og Halldóri Karli Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að vinna tillögur að umsögnum og leggja fyrir á næsta bæjarráðsfundi þann 5. febrúar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. febrúar 2026.