1550. fundur

05.02.2026 08:15

1550. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 5. febrúar 2026, kl. 08:15

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Margrét A. Sanders boðaði forföll, Guðbergur Reynisson sat fyrir hana.

1. Kostnaður vegna málefna fatlaðs fólks (2026020053)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Ólafur Garðar Rósinkarsson verkefnastjóri í málefnum fatlaðra mættu á fundinn.

Lagt fram minnisblað um útgjöld Reykjanesbæjar í málefnum fatlaðs fólks.

Bæjarráð þakkar fyrir samantektina.

2. Fundargerð stjórnar Eignasjóðs 29. janúar 2026 (2026010015)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eignasjóðs.

Fylgigögn:

Fundargerð 25. fundar stjórnar eignasjóðs 29. janúar 2026

3. Umsögn vegna rekstrarleyfis – Hótel Lindarbraut ehf., Lindarbraut 634 (2025110179)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki IV - A. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

4. Umsögn vegna rekstrarleyfis - Kiwi veitingar ehf., Njarðarvellir 4 (2026010264)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur veitingastaðar í flokki II-C. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

5. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 23.-25. september 2026 (2026020043)

Lagt fram fundarboð um landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

6. Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 13. nóvember 2025 (2025020452)

Lögð fram til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.

Fylgigögn:

55. fundur Svæðisskipulags Suðurnesja 13112025

7. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. janúar 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fylgigögn:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 992

8. Fundargerð aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 9. desember 2025 (2026020035)

Lögð fram fundargerð aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Fylgigögn:

Fundargerð 50 aðalfundar SSS 9.12.2025

9. Umsagnarmál í samráðsgátt (2026010453)

Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga, mál nr. 15/2026
Með því að smella hér opnast drög að frumvarp til laga
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum, mál nr. 3/2026
Með því að smella hér opnast frumvarp til laga
Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga, mál nr. 27/2026
Með því að smella hér opnast umsagnarmál í samráðsgátt

Umsagnarmál lögð fram.

10. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)

Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030, 322. mál
Með því að smella hér opnast þingsályktunartillagan
Reykjanesbær sendir inn umsögn í samráðsgátt um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030.

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.), 312. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum
Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks, 311. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til laga
Frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn, 305. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til laga
Tillaga til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri, 16. mál
Með því að smella hér opnast þingsályktunartillagan

Umsagnarmál lögð fram.

Fylgigögn:

Umsögn Reykjanesbæjar - samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.