1554. fundur

05.03.2026 08:15

1554. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 5. mars 2026, kl. 08:15

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir og Sigurrós Antonsdóttir.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Sigurrós Antonsdóttir sat fyrir hana.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá Samstarf um hringrásariðngarð – erindisbréf (2023100396). Fjallað er um málið undirdagskrárlið 7.

1. Listamaður Reykjanesbæjar - reglur (2026020506)

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi mætti á fundinn.

Lagðar fram uppfærðar reglur um nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar.

Bæjarráð samþykkir 5-0 uppfærðar reglur í samræmi við umræður á fundinum.

2. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 20. mars 2026 - fundarboð (2026020298)

Lagt fram aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.

3. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 19. febrúar 2026 (2026010077)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.

Fylgigögn:

Fundargerð 98. fundur stjórnar BS

4. Fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs 23. febrúar 2026 (2026010487)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs.

Fylgigögn:

Fundur stjórnar RGP nr. 93

5. Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 26. febrúar 2026 (2026030004)

Lögð fram til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.

Fylgigögn:

56. fundur Svæðisskipulags Suðurnesja 26022026

6. Fjárreiður Reykjanesbæjar (2025040024)

Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn og fór yfir fjárstreymi og stöðu fjárfestinga sveitarfélagsins.

7. Samstarf um hringrásariðngarð – erindisbréf (2023100396)

Tekið fyrir erindisbréf um skipun í faghóp sem hefur það hlutverk að vera ráðgefandi um lóðaúthlutanir í takt við markmið hringrásariðngarðs.

Bæjarráð vísar málinu til frekari umræðu í umhverfis- og skipulagsráði og atvinnu- og hafnarráði.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:10. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. mars 2026.