- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lagt fram minnisblað frá 1351. fundi bæjarráðs ásamt Samþykkt um Bílastæðasjóð Reykjanesbæjar sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi 7. maí 2024.
Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að halda áfram með verkefnið í samræmi við forsendur sem koma fram í minnisblaðinu.
Bæjarráð samþykkir að fela Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur að halda áfram með verkefnið í samræmi við forsendur í minnisblaðinu og að vísa erindinu til fjárhagaáætlunar 2027.
Lagt fram til kynningar verðmat vegna Faxabrautar 13 í Reykjanesbæ.
Lagt fram erindi Brynju leigufélags ses. vegna umsóknar félagsins til HMS um stofnframlög vegna kaupa á íbúðum í Reykjanesbæ á árinu 2026. Hlutur stofnframlags Reykjanesbæjar er 12% eða kr. 41.500.000.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunar 2027.
Lögð fram beiðni um styrk.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við því að þessu sinni.
Lagt fram aðalfundarboð HS Veitna hf.
Bæjarráð felur Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur forseta bæjarstjórnar að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
Lögð fram ársskýrsla Fab-Lab Suðurnes.
Fylgigögn:
Ársskýrsla Fab Lab Suðurnes 2025
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fylgigögn:
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 994
• Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 499. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum
• Frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til laga
Umsagnarmál lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:40. Fundargerðin fer til afgreiðsu bæjarstjórnar 17. mars 2026.