1557. fundur

26.03.2026 08:15

1557. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn 26. mars 2026, kl. 08:15

 
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir.
 
Að auki sátu fundinn Birgir Már Bragason áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
 
Helga María Finnbjörnsdóttir boðaði forföll, Birgir Már Bragason sat fyrir hana.
 
Bæjarráð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá Inga Hrönn Kristjánsdóttir - umsókn um tækifærisleyfi (2026030464). Fjallað er um málið undirdagskrárlið 6.
 
Vegna tilmæla frá Almannavörnum um að vera ekki á ferðinni að ónauðsynjalausu vegna óveðurs var fundurinn haldinn á Teams.
 

1. Umferðaröryggi 2026-2030 (2026020367)

 
Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála mætti á fundinn.
 
Lögð fram aðgerðaáætlun umferðaröryggis þar sem greint er og forgangsraðað úrbótum á lýsingu við umferðamannvirki í Reykjanesbæ.
 
Bæjarráð samþykkir að fela Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála að hefja framkvæmd aðgerðaáætlunar vegna árs 1 (2026) og einnig að framkvæmd aðgerðaáætlunar ár 2 (2027) verði flýtt og framkvæmd á árinu 2026 þar sem áætluðum framkvæmdakostnaði að fjárhæð 8.049.484,- verði mætt með gatnagerðargjöldum sem tekjufærð eru á deild 10300 Viðhald og rekstur gatnakerfis.
 

2. Landsbyggðastrætó - breytingar á leiðakerfi (2025090386)

 
Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála mætti á fundinn og fór yfir stöðuna.
 
Bæjarráð felur Guðlaugi H. Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála að fara í frekari viðræður við Vegagerðina varðandi framhald á leið 55.
 

3. Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 19. janúar og 16. mars 2026 (2026010487)

 
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs.
 
Fylgigögn:
 
 

4. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 10. mars 2026 (2026010670)

 
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Fylgigögn:
 
 

5. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)

 
• Frumvarp til laga um lagareldi, 529. mál
• Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð (bætt lagaumgjörð), 530. mál
 
Umsagnarmál lögð fram.
 

6. Inga Hrönn Kristjánsdóttir - umsókn um tækifærisleyfi (2026030464)

 
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:20. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. apríl 2026.