1559. fundur

09.04.2026 08:15

1559. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 9. apríl 2026, kl. 08:15

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Umsögn vegna rekstrarleyfis – GREEN SALAD STORY ehf., Aðalgata 10 (2026010260)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um reksturs gististaðar í flokki II-B. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

2. Fimleikadeild Keflavíkur - lendingardýna (2026040066)

Lagt fram erindi frá fimleikadeild Keflavíkur um styrk til lagfæringar á lendingardýnu, áætlaður kostnaður er kr. 5 milljónir.

Bæjarráð samþykkir beiðnina. Kostnaður fer á lykil 06-020-9220 kr.2.000.000 og lykil 21-010-9220 kr. 3.000.000.

3. Ráðstefna um málefni norðurslóða 13. maí 2026 (2026030483)

Upplýsingar um ráðstefnu Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.

4. Aðalfundur Brunavarna Suðurnesja 30. apríl 2026 (2026030523)

Lagt fram aðalfundarboð Brunavarna Suðurnesja. Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði Reykjanesbæjar á fundinum.

5. Tilkynningarskylda skógarræktar - ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands (2026040037)

Lögð fram ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands.

Fylgigögn:

Ályktun samþykkt á fulltrúafundi 2026

6. Fjárreiður Reykjanesbæjar (2025040024)

Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn og fór yfir fjárstreymi og stöðu fjárfestinga sveitarfélagsins.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. apríl 2026.