1560. fundur

16.04.2026 08:15

1560. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 16. apríl 2026, kl. 08:15

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir og Sigurrós Antonsdóttir.

Að auki sátu fundinn Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Sigurrós Antonsdóttir sat fyrir hana.

1. Ársreikningur Reykjanesbæjar 2025 (2026040150)

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri sat fundinn undir þessu máli í gegnum fjarfundabúnað.
Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Þorgeir Sæmundsson deildarstjóri reikningshalds mættu á fundinn.

Lögð fram drög að ársreikningi Reykjanesbæjar 2025.

Bæjarráð vísar ársreikningi í endurskoðun og til fyrri umræðu í bæjarstjórn 21. apríl 2026.

2. Svítur við Myllubakkaskóla (2026030446)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn.

Lagðar fram þarfagreiningar og rökstuðningur um áframhaldandi notkun á svítum sem verið hafa í notkun við Myllubakkaskóla.

Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur og felur deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram.

3. Listamaður Reykjanesbæjar (2026020506)

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi mætti á fundinn.

Lagðar fram umsagnir menningar- og þjónusturáðs vegna vals á listamanni Reykjanesbæjar 2026-2030.

Bæjarráð hefur samþykkt 5-0 val á listamanni Reykjanesbæjar 2026-2030 og verður valið tilkynnt við hátíðardagskrá 17. júní nk.

4. Tómstundamiðstöð - kynning (2026030173)

Lögð fram kynning vinnuskóla Reykjanesbæjar.

Bæjarráð samþykkir að ráða 10 ungmenni á aldrinum 16-18 ára til Vinnuskólans og 10 ungmenni á aldrinum 16-18 ára til garðyrkjudeildar í sumar í hámark 6 vikur. Hámarkslaunakostnaður á hvora deild er 6.500.000,- kr. með launatengdum gjöldum og er ábyrgðarmönnum deildanna gert að reyna að rúma fjárhæðir innan fjárheimilda 2026. Í lok sumars þurfa ábyrgðarmenn að skila uppgjöri á sumrinu til bæjarráðs.

5. Krakkakosningar 2026 - lýðræðisleg þátttaka barna (2026040117)

Lagt fram erindi frá umboðsmanni barna þar sem hvatt er til að sveitastjórnir og ungmennaráð standi fyrir krakkakosningum í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að skoða möguleika á framkvæmd verkefnisins.

Fylgigögn:

Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

6. Lilja Karen Steinþórsdóttir (Hótel Keflavík) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030287)

Halldóra Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs mætti á fundinn.

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

7. Fjölbrautaskóli Suðurnesja - umsókn um tækifærisleyfi (2026040098)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8. Jóna Helena Bjarnadóttir (Sundráð ÍRB) - umsókn um tækifærisleyfi (2026040126)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

9. Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 29. apríl 2026 (2026040152)

Lagt fram aukaaðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga.

10. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur - umsókn um tækifærisleyfi (2026040164)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:52. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. apríl 2026.